Hátíðahöldin 1. maí í Berlín einkenndust af ofbeldi, grjótkasti og öðru slíku en umfang óeirðanna var samt minna en síðustu ár að því er fram kemur í Der Spiegel. Engu að síður var grjóti og flöskum kastað og kveikt í öskutunnum. Óeirðalögregla var hlaupandi á eftir óeirðaseggjum. Lögreglan handtók nokkra mótmælendur og nokkrir lögreglumenn slösuðust, einn svo mjög að flytja varð hann á brott. Meginefni mótmælanna, sem ganga undir heitinu 1. maí Byltingarinnar, var að mótmæla hækkun á húsaleigu í borginni. Talið er að um tíu þúsund manns hafi tekið þátt í þessari mótmælagöngu.
Í Hamborg voru 23 handteknir og fimm lögreglumenn slösuðust. Um 1000 lögreglumenn fylgdust með göngunni þar. Í Berlín voru 7000 lögreglumenn á vakt.
Mest voru mótmælin 1. maí þó árin 2008 og 2009. Seinna árið voru 300 handteknir og 273 lögreglumenn slösuðust.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.