Angela Merkel Þýskalandskanslari hefur leyst Norbert Röttgen frá embætti umhverfisráðherra í stjórn sinni eftir að hann beið mikinn ósigur í kosningum til sambandslandsþingsins í Nordrhein-Westfalen sunnudaginn 13. maí. Í stað hans hefur hún skipað Peter Altmaier sem haft hefur daglega stjórn þingflokks Merkel á hendi í þinginu í Berlín.
Merkel tilkynnti þessa breytingu á ríkisstjórninni á skyndifundi með blaðamönnum í kanslarahöllinni síðdegis miðvikudaginn 16. maí.
Norbert Röttgen (46 ára) var í forystu CDU í Nordrhein-Westfalen þar sem flokkurinn tapaði rúmlega átta prósentustigum í kosningunum 13. maí. Hann þótti hafa staðið sig illa í kosningabráttunni og var sakaður um yfirlæti þegar hann neitaði að svara hvort hann mundi leiða flokkinn á heimaslóð sinni ef hann tapaði kosningunum. Það þótti benda til þess að honum væri sama um úrslitin og vildi aðeins komast sem fyrst til Berlína til að tryggja frama sinn þar. Hann hafði notið stuðnings Merkel og var jafnvel talinn meðal hugsanlegra arftaka hennar. Honum tókst þó ekki að afla sér vinsælda meðal þingmanna í Berlín þar sem hann sást ekki fyrir í framasókn sinni segir Der Spiegel.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Framkvæmdastjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu
Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...
Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara
Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...
Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildarviðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.
David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...