Hlutabréf í spænska bankanum Bankia lækkuðu enn verulega fimmtudaginn 17. maí. Stjórnendur bankans neyddust til að neita fréttum um að 1 milljarður evra hefði verið tekinn úr bankanum sem hefur verið þjóðnýttur að hluta. Bréf lækkuðu um 14% og hefur verð þeirra lækkað næstum um helming í þessum mánuði.
Ótti við tap spænskra banka vegna vanskila á risalánum þeirra til fasteignakaupa og byggingarframkvæmda dregur úr hlutabréfaverði um alla Evrópu.
„Á mörkuðum hafa menn áhyggjur af fjöldaúttektum úr bönkum og vaxandi vanda innan bankakerfisins,“ Neil MacKinnon, hagfræðingur við VTB Capital, við BBC fimmtudaginn 17. maí.
Alberto Gallo, lánasérfræðingur hjá Royal Bank of Scotland, sagði BBC:
„Vandinn er sá að spænskir bankar eru of stórir til að ríkisstjórnin geti staðið undir þunga þeirra. Þeir [spænska ríkisstjórnin] verða að velja og hafna og aðeins vernda sterka banka annars fer Spánn sömu leið og Írland – þar verður strangt aðhald og hugsanlega tapa þeir sem eiga skuldabréf banka.“
Fernando Jimenez Latorre, efnahagsráðherra Spánar, neitar því að innstæðueigendur hafi tekið óeðlilega mikið fé úr Bankia-bankanum. „Það er ekki satt að fólk keppist nú við að taka fé úr Bankia,“ sagði Fernando Jimenez Latorre. Bankastjóri Bankia sagði að hreyfing á fé í bankanum hefði verið „í grundavallaratriðum eðlileg“
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.