Nick Clegg, varaforsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Frjálslynda flokksins sagði í gær að deilur í Bretlandi um aðild að Evrópusambandinu yrðu smámál miðað við þá hættu, sem væri á vaxandi styrk pólitískra öfgahreyfinga. Hann viðurkenndi að Evrópuhugsjónin stæði frammi fyrir skorti á tiltrú og trausti fólks. Clegg sagði í viðtali við Der Spiegel, að Evrópuþjóðirnar væru dæmdar til að vinna saman en benti á, að níu ríkisstjórnir í Evrópulöndum hefðu fallið frá árinu 2009. Við verðum að leggja meira á okkur, sagði Clegg. Þessa stundina tekur einn leiðtogafundur við af öðrum, ein kosning af annarri og hvert neyðarlánið á fætur öðru. Við vitum að þegar fjárhagslegt öryggisleysi og pólitísk lömun fara saman er hætta á ferðum og líkur á öfgastefnum og einangrun. Hann bætti því við að ef evrulöndin settu ekki fram skýra sýn á framtíðina mundi það gerast á næstu 3-5 árum, að pólitískar hreyfingar, sem byggist á þjóðernisstefnu, öfgum, einangrunarstefnu og lýðskrumi rísi um alla Evrópu.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Framkvæmdastjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu
Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...
Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara
Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...
Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildarviðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.
David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...