Leiðtogar 28 aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) samþykktu að kvöldi sunnudags 20. maí á fundi í Chicago að virkja fyrsta hluta í sameiginlegu eldflaugavarnarkerfi. Þá hafa verið kynnt áform á vettvangi NATO sem miða að því að sameina krafta aðildarríkjanna meira en áður í þágu varnarviðbúnaðar í því skyni að nýta opinbera fjármuni betur á tímum mikils niðurskurðar, er þetta gert undir merki „snjallvarna“.
Varnarkerfinu gegn eldflaugum verður komið fyrir í Evrópu á landi og á skipum á siglingu í nágrenni álfunnar. Uppsetningin er þegar hafin þrátt fyrir andstöðu Rússa og hótanir þeirra um að svara með gagnráðstöfunum.
Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði á leiðtogafundinum í Chicago að eins og málum væri nú háttað hefði eldflaugavarnarkerfið verið virkjað að hluta. Um er að ræða ratsjár í Tyrklandi og bandarísk herskip með gagneldflaugar á Miðjarðarhafi. Yfirstjórnin er í Ramstein í Þýskalandi.
Stefnt er að því að varnarkerfið verði að fullu komið í gagnið árið 2020 með SM-3 eldflaugastöðvum í Póllandi og Rúmeníu. Rússar hafa árum saman barist gegn áformum Bandaríkjanna og NATO um eldflaugavarnir. Engin umsamin niðurstaða varð á fundi Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og Mikhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta í Höfða í október 1986 af því að Reagan hélt fast í rétt Bandaríkjamanna til að koma upp eldflaugavörnum. Þá kölluðu menn varnarkerfið „stjörnustríðsáætlun“ Reagans.
Rússar hafa hótað að svara þessum áætlunum NATO með því að koma fyrir Iskander-eldflaugum í Kaliningrad, landskika sem þeir eiga fyrir botni Eystrasalts milli NATO-ríkjanna Póllands og Litháens, þar sem áður hét Köningsberg. Af hálfu NATO er sagt að þessar hótanir Rússa séu út í hött þar sem varnarkerfið miði að því að svara eldflaugaárás frá Íran.
Á leiðtogafundi NATO-ríkjanna í Lissabon árið 2010 var Rússum boðin samvinna um eldflaugavarnirnar. Á þeim tíma sem síðan er liðinn hafa ekki tekist samningar milli aðila um hvernig að þessari samvinnu skuli staðið. NATO hefur hafnað kröfum Rússa um sameiginlega stjórn á kerfinu og að tryggt verði á lagalega skuldbindandi hátt að því verði ekki beint gegn Rússlandi.
„Við höfum boðið Rússum samvinnu um eldflaugavarnirnar, það boð stendur enn,“ sagði Anders Fogh-Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, á blaðamannafundi. „Við höldum viðræðum við Rússa áfram, ég vona að Rússum verði á einhverju stigi málsins ljóst að við höfum sameiginlega hagsmuni af samvinnu um eldflaugavarnir.“ Hann sagði einnig að Rússar gætu ekki brugðið fæti fyrir þessa ákvörðun NATO-ríkjanna.
Valdimir Putin Rússlandsforseti ákvað að sitja ekki fundinn í Chicago þegar NATO-Rússlands-ráðið kemur saman heldur senda embættismenn í sinn stað. Hann tók ekki heldur þátt í G8 fundinum í Camp David föstudag 18. og laugardag 19. maí, sat Dmitri Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, þann fund.
Innan NATO líta menn á eldflaugavarnarkerfið sem mikilvægasta tákn um nýja tíma í samræmi við nýja varnarstefnu bandalagsins þar sem lögð er áhersla á „snjallvarnir“ (smart defense á ensku) en undir hugtakið felst viðleitni til að bæta upp niðurskurð í útgjöldum til varnarmála með aukinni hagkvæmni, nýrri tækni og samvinnu milli þjóða.
Á fundinum samþykktu leiðtogarnir að ráðist yrði í rúmlega 20 fjölþjóðleg verkefni og má þar nefna fjarstýrðar, marksæknar sprengjur og smíði fjarstýrðra vélmenna til að hreinsa jarðsprengjur.
Heimild: Dw.de
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Kínverjar reyna að blekkja Evrópumenn með gervi-aspiríni
Franskir tollverðir hafa gert upptæka 1,2 milljón skammta af gervi-aspiríni frá Kína.
Fyrrverandi menntamálaráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "
Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu
Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráðstefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópusambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.
Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns
Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, forstjóri AGS og fyrrum fjármálaráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútugreiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.