Alexis Tsipras, leiðtogi fylkingar vinstrisinna í Grikklandi, Syriza, sagði Angelu Merkel Þýskalandskanslara stríð á hendur á blaðamannafundi í París mánudaginn 21. maí, það væri ekki hennar að ákveða hvort fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla í Grikklandi.
„Grikkland er fullvalda ríki […] Frú Merkel ákveður ekki hvort við göngum til þjóðaratkvæðagreiðslu ,“ sagði Tsipras eftir fund með Jean-Luc Mélenchon, leiðtoga Vinstrifylkingarinnar í Frakklandi. „Það er ekki unnt að semja um neitt í samkomulaginu (aðhaldsskilmálum ESB, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabanka Evrópu gagnvart Grikkjum) því að ekki er unnt að semja við myrkrahöfðingjann. […] Það verður að ræða málin að nýju, ekki samkomulagið, heldur hinar opinberu skuldir,“ sagði Tsipras.
Georg Streiter, talsmaður Þýskalandskanslara, brást tafarlaust við þessum ummælum og hafnaði því enn á ný að Angela Merkel hefði hreyft þeirri hugmynd að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna í Grikklandi. Það væri ekki hlutverk kanslarans að ákveða réttina í málsverði grískra stjórnmálamanna.
Alexis Tsipras sem er sannfærður um að hann geti að lokum hindrað slit Grikkja á evru-samstarfinu hóf mánudaginn 21. maí ferð til nokkurra höfuðborga í Evrópu. „Frumástæða þess að ég legg land undir fót er að ég vil upplýsa stjórnvöld í stærstu löndum Evrópusambandsins, eins og Frakklandi og Þýskalandi, um afstöðu okkar; það sem sagt er um okkur innan ESB lýsir hvorki afstöðu okkar né því sem við viljum,“ sagði hann.
Leiðtogi Syriza lagði ríka áherslu á að hann vildi að Grikkir yrðu áfram með evru. Hann sagðist hlynntur hugmyndum um leiðir til að ýta undir hagvöxt. Alexis Tsipras hitti enga fulltrúa franskra stjórnvalda í París og þýskir embættismenn munu ekki heldur ræða við hann í Berlín. Hann ræddi hins vegar við Jean-Luc Mélechon í París og mun hitta leiðtoga Die Linke, Vinstriflokksins, í Þýskalandi, Klaus Ernst og Gregor Gysi.
Í þingkosningunum í Grikklandi 6. maí hlaut Syriza næstflest atkvæði. Ekki tókst að mynda meirihlutastjórn í landinu og verður því kosið að nýju til þings 17. júní. Samkvæmt síðustu könnunum er Alexis Tsipras með jafnmikið fylgi og Antonis Samaras, leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins, íhaldsflokks sem fékk flest atkvæði í kosningunum 6. maí.
Heimild: Le Monde
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...