Sunnudagurinn 19. maí 2013

Fjármála­ráðherrar Þýskalands og Frakklands segjast ætla að bjarga evrunni með Grikki innanborðs


21. maí 2012 klukkan 20:50

Fjármálaráðherrar Þýskalands og Frakklands hafa áréttað að þeir muni vinna saman að lausn á vanda evru-svæðisins. Ólík viðhorf þeirra til evru-skuldabréfa kunna hins vegar að flækja málið.

Wolfgang Schäuble og Pierre Moscovici

Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, lagði áherslu á það eftir fyrsta fund sinn með Pierre Moscovici, fjármálaráðherra Frakklands, mánudaginn 21. maí í Berlín að ríkin mundu koma sér saman um stefnuna í evru-málu,

„Ég er þess fullviss að okkur muni takast að leysa úr málum,“ sagði Schäuble á blaðamannafundi eftir fundinn.

Ráðherrarnir undirbjuggu meðal annars óformlegan leiðtogafund ESB-ríkjanna 23. maí. Þeir sögðust vilja halda Grikkjum innan evru-samstarfsins.

„Við teljum báðir að Grikkir eigi heima á evru-svæðinu,“ sagði Moscovici við blaðamennina. Hann sagði að þeir væru þó ekki sammála um allt og nefndi þá evruskuldabréf.

„Þau skipta okkur mjög miklu,“ sagði Moscovici.

Þýska ríkisstjórnin hefur hvað eftir annað hafnað útgáfu evru-skuldabréfa. Með þeim á að setja allar opinberar skuldir á evru-svæðinu undir sama hatt til að skuldug ríki eigi auðveldara með að taka lán á fjármálamörkuðum. Þjóðverjar telja að slík ráðstöfun muni minnka þrýsting á stjórnvöld skuldugra ríkja og draga úr aðhaldi að ríkisrekstri þeirra. Schäuble sagði mánudaginn 21. maí að aðhaldssöm ríkisfjármálastjórn væri óhjákvæmileg til að bæta lífskjör í Evrópu.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ítalía: Um 38% ungmenna án atvinnu

Um 38% ungmenna á Ítalíu á aldrinum 15-24 ára eru atvinnulaus skv. yfirliti, sem birt er á fréttavef BBC í tilefni af mótmælum um 100 þúsund Rómarbúa vegna heimsóknar Angelu Merkel til Ítalíu í gær. Atvinnuleysi er langmest í þessum aldurs­flokki á Grikklandi og Spáni, eins og áður hefur komið fram en Ítalía er í þriðja sæti.

Ný könnun: 46% Breta vilja yfirgefa Evrópu­sambandið

Samkvæmt nýri skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Sunday Telegraph í London vilja 46% Breta yfirgefa Evrópu­sambandið.

Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa

Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...

Ítalir efna til fjöldamótmæla í Róm - Merkel líkt við nasistaforingja

Um 100.000 manns mótmæltu í Róm laugardaginn 18. maí. Forystumenn verkalýðs­samtaka stjórnuðu aðgerðunum undir rauðum fánum og markmið þeirra var að knýja fram stefnubreytingu hjá nýrri ríkis­stjórn landsins undir forsæti Enricos Letta sem kemur úr röðum vinstri manna. Þá einkenndust mótmælin einnig a...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS