Mánudagurinn 25. janúar 2021

Evrukreppan: Catalóníu vantar peninga-franskir bankar búa sig undir brottför Grikkja


26. maí 2012 klukkan 09:17

Auðugusta sjálfstjórnarsvæði Spánar, Catalonia, tilkynnti í gær að það þyrfti á aðstoð frá spænska ríkinu að halda til þess að borga reikninga sína um mánaðamót og hefði ekki lengur möguleika á að endurfjármagna skuldir sínar. Forsvarsmaður Catalóníu sagði að það skipti ekki máli hvernig sú aðstoð yrði veitt. Catalóníumenn yrðu að borga um hver mánaðamót. Einn viðmælandi Reuters segir, að þetta hafi verið miklar fréttir vegna þess, að spænska ríkið geti ekki aukið við skuldir sínar.

Yfirlýsing Catalóníu varð til þess að kröfur heyrðust hér og þar um að Evrópuríki yrðu að vera undir það búin að Grikkland hverfi af evrusvæðinu þrátt fyrir yfirlýsingar leiðtoga ESB um annað fyrir nokkrum dögum. Utanríkisráðherra Belgíu sagði að það væru alvarleg mistök að gera ekki ráðstafanir.

Reuters hefur heimildir fyrr því, að franskir bankar hraði nú undirbúningi sínum fyrir brottför Grikklands en þeir eiga mikla peninga inni hjá Grikkjum.

Einn af formlegum ráðgjöfum þýzkra stjórnvalda, Peter Bofinger segir að endursemja verði við Grikki um lánaskilmála vegna þess að fyrri samningar hafi verið byggðar á væntingum um meiri hagvöxt en nú blasi við.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS