Miðvikudagurinn 29. júní 2022

Grikkir heyja Facebókarstríð gegn Lagarde


27. maí 2012 klukkan 17:43
Christine Lagarde

Grikkir heyja nú Facebókarstríð gegn Christine Lagarde, forstjóra AGS vegna athugasemda hennar um skattsvik í Grikklandi , en frá þeim hefur verið sagt hér á Evrópuvaktinni. Um 10 þúsund mótmælabréf hafa birtzt á síðu hennar á Facebook.

Evangelos Venizelos, leiðtogi PASOK segir að Lagarde hafi með orðum sínum móðgað grísku þjóðina. Alexis Tsipras, leiðtogi SYRIZA segir að grískir launþegar borgi skatta, sem séu óbærilegir.

Lagarde hefur svarað og segist hafa fyllstu samúð með grísku þjóðinni í þrengingum hennar. Evangelos Venizelos kvaðst fagna ummælum Lagarde á Facebókarsíðunni en enginn gæti leyft sér að auðmýkja grísku þjóðina við þessar aðstæður. Tsipras sagði að samúð Lagarde væri það síðasta sem Grikkir gætu óskað sér. Hann hvatti Lagarde til að snúa sér til leiðtoga PASOK og NL og spyrja þá hvers vegna þeir hefðu hundelt launþega síðustu ár með skattahækkunum en látið ríka fólkið í friði.

Jean-Luc Mélenchon, frambjóðandi vinstri manna í forsetakosningunum í Frakklandi sagði að Lagarde ætti að segja af sér vegna ummælanna. Hver gefur henni leyfi til að tala svona til Grikkja spurði Mélenchon í sjónvarpsviðtali?

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS