Föstudagurinn 15. janúar 2021

Samdráttur á heimsvísu hafinn?-Vaxandi atvinnuleysi á evru­svæðinu og í Bandaríkjunum-mikil lækkun hluta­bréfa-hægir á í Kína


2. júní 2012 klukkan 09:56

Um 17,4 milljónir manna voru atvinnulausar á evrusvæðinu í apríl eða um 11% að sögn BBC. Þetta er óbreytt tala frá því í marz. Í Bandaríkjunum urðu aðeins til 69 þúsund ný störf í maí, sem hefur vakið áhyggjur um efnahagslegan samdrátt á heimsvísu. Í Kína er að hægja á hagvexti. Afleiðingin er sú, að í gær, föstudag varð mikil lækkun á verði hlutabréfa um heim allan og milljarðar í eigum þurrkuðust út.

Sem fyrr var atvinnuleysi á evrusvæðinu mest á Spáni eða um 24,3%, en minnst í Austurríki eða um 3,9%. Fjöldi atvinnulausra á evrusvæðinu jókst um 100 þúsund á milli marz og apríl. Atvinnuleysi innan ESB alls hækkaði úr 10,2% í 10,3% milli mánaða. Atvinnuleysi á Ítalíu og í Frakklandi jókst úr 10,1% í 10,2%. Hins vegar minnkaði atvinnuleysi í Þýzkalandi úr 5,5% í 5,4%.

Daily Telegraph segir að atvinnuleysi í Bandaríkjunum hafi aukizt úr 8,1% í 8,2% og er það í fyrsta sinn frá því í júní í fyrra að atvinnuleysi eykst á milli mánaða í Bandaríkjunum. Sérfræðingur, sem DT talar við segir að staðan á evrusvæðinu sé nú byrjuð að hafa áhrif í Bandaríkjunum.

Financial Times segir í morgun að vondar tölur frá Bandaríkjunum, og veikar tölur frá Brasilíu, Kína og Bretlandi, hafi ýtt undir áhyggjur um samdrátt á heimsvísu. Paul Krugmann, sagði fyrir nokkrum dögum að ný Kreppan mikla væri þegar hafin.

Mikil lækkun varð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í gær eins og sést á því að markaðurinn í Frankfurt lækkaði um 3,4%.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS