Föstudagurinn 15. janúar 2021

Merkel boðar tveggja hraða ESB - vill að umboð verði samþykkt fyrir lok júní


7. júní 2012 klukkan 08:48

Angela Merkel Þýskalandskanslari sagði fimmtudaginn 7. júní að hún mundi vinna að því að efla póltíska samvinnu innan Evrópusambandsins með þeim þjóðum sem það vildu, jafnvel þótt það leiddi til „tveggja hraða“ samskipta.

Angela Merkel

„Við verðum að efla samstarfið innan ESB – við þurfum ríkisfjármálabandalag – fyrst og fremst þurfum við pólitískt samband,“ sagði Merkel í samtali við þýska sjónvarpsstöð. „Við verðum að færa vald til ESB skref fyrir skref.“

Merkel hefur sætt gagnrýni fyrir að standa gegn tillögum sem hafa verið kynntar til að leysa skuldavanda evru-svæðisins sagði einnig: „Við getum ekki látið það stöðva okkur að eitt eða annað ríki vill ekki enn slást í för með okkur.“

Í samtalinu sagði Merkel að ekki yrði unnt að leysa allan vanda ESB á einum leiðtogafundi og vísaði þar til fundarins sem verður í Brussel 28. og 29. júní. Hún sagðist hins vegar vilja að á fundinum yrði samþykkt umboð til að vinna að öflugra pólitískra samstarfi undir merkjum ESB.

Merkel sagði að aðhald í ríkisrekstri og hagvöxtur væru tvær hliðar á sama peningnum. Aðeins yrði um varanlegan vöxt að ræða ef samkeppnisstaða allra ESB-ríkjanna styrktist. „Hvert og eitt ESB-ríki verður að horfast í augu við veikleika sína,“ sagði kanslarinn.

Heimild: AFP

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS