Miðvikudagurinn 20. janúar 2021

Alexix Tsipras: ESB hefur ekki efni á að missa Grikkland af evru­svæðinu

Mundi kveikja elda, sem yrðu óviðráðanlegir


13. júní 2012 klukkan 08:25
Alexis Tsipras

Alexis Tsipras, leiðtogi SYRIZA í Grikklandi telur að Evrópusambandið hafi ekki efni á þvi að missa Grikkland út af evrusvæðinu. Hann segir að þeir eldar, sem þá mundu kvikna yrðu óviðráðanlegir og takmarkist ekki við Grikkland eða suðurhluta Evrópu heldur muni þeir leiða til þess að evrusvæðið splundrist og það sé engum í hag. Tsipras bendir á að sögn ekathimerini, að Spánn hafi tryggt sér fjármögnun án harðra skilmála. Hann segist munu nálgast lánardrottna Grikkja með það að markmiði að sannfæra þá en ekki efna til deilna við þá.

Tsipras upplýsir jafnframt að SYRIZA hafi undirbúið plan B í því tilviki, að samkomulag náist ekki. Tsipras segist muni endurreisa lágmarkslaun, atvinnuleysistryggingar og lífeyri og binda endi á spillt og rotið pólitískt kerfi. Hann kveðst muni lækka um helming laun forsætisráðherra og annarra ráðherra, hann muni ekki segja upp opinberum stafsmönnum en hins vegar muni hann frekar skattleggja ríka Grikki en fátæka.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS