Morten Bødskov , dómsmálaráðherra Danmerkur, segist ætla að fylgjast með framvindu mála á ESB-þinginu en Martin Schulz, forseti þingsins, segir að formennska ráðherrans á fundi innanríkisráðherra ESB hafi kallað fram gífurlega reiði þingmanna. Ráðherrann hafi ekki gætt hagsmuna þingsins heldur ýtt til hliðar við afgreiðslu samkomulags um framkvæmd á Schengen-reglum.
„Mér skilst að það verði haldinn fundur á morgun [fimmtudaginn 14. júní] og við sjáum hvað gerist þá. Við verðum að taka afstöðu til málsins þegar umræðum um það er lokið á ESB-þinginu,“ segir ráðherrann við jp.dk.
Á vefsíðunni segir miðvikudaginn 13. júní að ekki liggi fyrir endanlega niðurstaða um hve langt ESB-þingið muni ganga gagnvart dönsku formennskunni og stöðva framgang mála sem hún vill að nái fram að ganga.
Martin Schulz segir að formenn fjögurra stærstu þingflokkanna vilji stöðva framgang um 10 mála á dómsmálasviðinu.
Morten Bødskov var í ESB-þinginu þriðjudaginn 12. júní til að verja samkomulag innanríkisráðherranna um Schengen frá 7. júní. Hann sætti mikilli gagnrýni þingmanna.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.