Fimmtudagurinn 23. maí 2013

AGS: Írar kunna að þurfa á nýju neyðarláni að halda

Geta ekki farið á markað 2013 eða 2014 nema evruríkin nái tökum á vandamálum sínum


16. júní 2012 klukkan 10:05

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn segir að svo kunni að fara að Írar þurfi á nýju neyðarláni að halda frá ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu. Ástæðan sé sú, að það verði erfitt fyrir Íra að selja skuldabréf á markaði á næsta ári nema evrusvæðinu takist að ná tökum á vandamálum sínum. Ef Írar geti ekki farið á markað árið 2013 og alla vega 2014 eigi þeir ekki annan kost en leita eftir nýju neyðarláni. Wall Street Journal, sem segir frá þessu í dag segir, að þetta yrði mikið áfall fyrir evrusvæðið þar sem Írar hafi hingað til staðið við alla skilmála, sem þeim hafi verið settir og ekki ástæða til að ætla annað en þeir geri það áfram.,

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Framkvæmda­stjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu

Framkvæmda­stjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...

Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara

Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...

Osló: Norsk stjórnvöld töldu aðild Íslands að ESB aldrei líklega - vænta aukins samstarfs til að styrkja stöðuna innan EES

Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildar­viðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkis­stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.

David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS