
Angel Gurria, forstjóri OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, sagði í gær, laugardag, að gefa eigi Grikkjum tækifæri til að endurskoða samninga, sem gerðir hafa verið um neyðarlán við ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu geti það orðið til þess að þeir verði áfram innan evrusvæðisins. Áður hafði Angela Merkel útilokað slíka endurskoðun en Gurria bendir á að leiðtogar alllra helztu flokka í Grikklandi hafi lýst yfir vilja til að vera áfram innan evrunnar. Þess vegna eigi ekki að útiloka einhverjar lagfæringar á gerðum samningum. Frá þessu segir ekathimerini.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Evrópa: Efnamunur minnstur í Noregi og á Íslandi
Efnamunur er minnstur í Noregi og á Íslandi af Evrópulöndum að því er fram kemur á vefmiðli finnsku Yle fréttastofunnar. Mesti efnamunur er í Lettlandi og Búlgaríu. Efnamunur í Finnlandi er fyrir neðan evrópskt meðaltal. Árið 2010 voru hini efnameiri í Finnlandi með um 5,3 sinnum hærri tekjur en þeir efnaminnstu.
Verð á hlutabréfum lækkar á heimsvísu í kjölfar mikillar lækkunar í Japan
Verð á hlutabréfum hefur verið að lækka á alþjóðlegum mörkuðum í morgun í kjölfar umtalsverðrar lækkunar á Nikkei vísitölunni í Japan. Ástæðan er annars vegar minnkandi fjárstreymi frá Seðlabanka Japans og hinsvegar að hagvöxtur í Kína er að hægja á sér. Nikkei-vísitalan hefur hækkað um 80% á síðustu 6 mánuðum en lækkaði í nótt um 7,3%, sem er mesta lækkun á einum degi í tvö ár.
Valkostur fyrir Þýzkaland: Evran er ástæðan fyrir miklu atvinnuleysi í Evrópu
Bernd Lucke, leiðtogi hins nýja þýzka stjórnmálaflokks, Valkosts fyrir Þýzkaland, segir að evran sé meginástæðan fyrir því mikla atvinnuleysi, sem ríki í Evrópu og að riki á borð við Spán og Grikkland eigi að yfirgefa evruna til þess að ná tökum á efnahagsvanda sínum.