Útgönguspár í Frakklandi sýna að sósíalistar sigra í síðari umferð þingkosninganna sunnudaginn 17. júní. Talið er að þeir muni fá 320 af 577 þingsætum. Reynist þetta rétt eru þetta bestu úrslit fyrir franska sósíalista í síðari tíma sögu Frakklands. Kjörsókn var 55,9%.
Spáin sýnir að sósíalistar geta myndað meirihluta á þingi án stuðnings græningja eða þeirra sem lengst eru til vinstri. Sósíalistar ráða nú í fyrsta sinn yfir meirihluta í báðum deildum franska þingsins.
Ségolène Royal, barnsmóðir og fyrrverandi sambýliskona François Hollandes Frakklandsforseta, náði ekki kjört í La Rochelle og féll fyrir brotthlaupnum sósíalista sem naut stuðnings núverandi sambýliskonu Hollandes. Forsetinn studdi Royal sem hafði gert sér vonir um að verða þingforseti. Þegar Royal viðurkenndi ósigur sinn sagðist hún vera fórnarlamb „pólitískra svika“.
Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, náði ekki kjöri í Henin-Beaumont en 22 ára gömul frænka hennar Marion Maréchal-Le Pen sigraði í sínu kjördæmi Carpentras. Þjóðfylkingin á nú tvo menn á þingi í fyrsta sinn síðan á níunda áratugnum. Marine Le Pen sagði að úrslit kosninganna sýndu „gífurlegan árangur“ flokks hennar. Hún krefst endurtalningar í kjördæmi sínu þar sem aðeins 118 atkvæði skildu á milli hennar og sigurvegarans úr röðum sósíalista.
Því er spáð að mið-hægrimenn í UMP og bandamenn þeirra fái á milli 212 og 234 þingsæti. Christian Fraser, fréttaritari BBC í París, segir að UMP sé forystulaus flokkur eftir fall Nicolas Sarkozys og kosningabarátta hans hafi verið dapurleg.
François Fillon, fyrrverandi forsætisráðherra og einn leiðtoga UMP, náði kjöri í París. Ýmsir þekktir franskir stjórnmálamenn féllu hins vegar í kosningunum og má þar nefna Claude Guéant, fyrrverandi innanríkisráðherra og hægri hönd Sarkozys í forsetahöllinni, Michèle Alliot-Marie, fyrrverandi utanríkisráðherra, innanríkisráðherra og varnarmálaráðherra. François Bayrou, leiðtoga og forsetaframbjóðanda mið-demókrata og sósíalistann Jack Lang, fyrrverandi menningarmálaráðherra.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.