Föstudagurinn 24. maí 2013

G-20 fundurinn: Evrópa samþykkir að setja bankakerfi undir sameiginlegt eftirlit og taka upp sameiginlegar innistæðutryggingar


19. júní 2012 klukkan 08:38
undefined

Samkvæmt fréttum frá fundi leiðtoga G-20 ríkjanna í Mexikó virðast leiðtogar Evrópuríkja, sem þar voru staddir hafa skuldbundið sig til að taka ný skref í átt til samræmds bankakerfis í Evrópu, sem lúti sameiginlegu bankaeftirliti og byggi á sameiginlegu innistæðutryggingakerfi.Þrýstingur á Evrópuríkin um að gera þetta hefur komið frá Bandaríkjunum, Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og framkvæmdastjórn ESB. Kjarninn í þessum aðgerðum væri að rjúfa þann vítahring, sem felst í því að skuldsett ríki komi bankakerfi, sem komið er í þrot til bjargar, sem hefur svo aftur leitt til versnandi fjármálastöðu einstakra ríkja og skapað þá kreppu, sem er á evrusvæðinu að því er fram kemur á Reuters.

Í frétt Reuters kemur fram, að Þjóðverjar kunni að vera opnari fyrir slíkum aðgerðum en áður. Talsmenn einstakra ríkja á fundinum í Mexikó hafa lýst ástandinu á evrusvæðinu, sem mestu áhættu, sem heimurinn standi frammi fyrir efnahagslega. Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB hefur tekið þessum athugasemdum illa og sagt að Evrópuríkin væru ekki komin til Mexikó til að hlusta á umvandanir frá öðrum. Efnahagskreppan eigi ekki rætur sínar í Evrópu. Þeirra sé að leita í Norður-Ameríku í bankakerfinu þar og er þá að vísa til Bandaríkjanna.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Þýzkaland: Aukin einkaneyzla tryggði örlítinn hagvöxt

Hagvöxtur í Þýzkalandi á fyrsta fjórðungi þessa árs var nánast enginn eða um 0,1% að því er fram kemur á BBC. Samdráttur varð í útflutningi og fjárfestingum en einkaneyzla jókst. Á síðasta fjórðungi síðasta árs varð samdráttur um 0,7%. Talið er að efnahagslægð sé gengin í garð, þgar samdráttur verðu...

Framkvæmda­stjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu

Framkvæmda­stjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...

Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara

Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...

Osló: Norsk stjórnvöld töldu aðild Íslands að ESB aldrei líklega - vænta aukins samstarfs til að styrkja stöðuna innan EES

Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildar­viðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkis­stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS