Antonis Samaras formaður Nýja lýðræðisflokksins (mið-hægri), vann miðvikudaginn 20. júní embættiseið sem nýr forsætisráðherra í Grikklandi. Stofnað var til grísk-orþodoks-athafnarinnar skömmu eftir að samkomulag tókst um þriggja flokka meirihlutastjórn með þátttöku sósíalista í Pasok-flokknum og minni mið-vinstriflokks, Lýðræðislega vinstriflokksins.
Samaras hét því að hann og ríkisstjórn hans mundu gera allt í mannlegu valdi til að vinna bug á hinum alvarlega efnahagsvanda sem þjakað hefur Grikki og vegið að undirstöðum evru-samstarfsins.
Umboð Samaras til stjórnarmyndunar rann út miðvikudaginn 20. júní að grískum stjórnlögum. Með því að vinna embættiseiðinn í krafti meirihluta á þingi nýtti Samaras umboðið og skýrði jafnframt frá því að hann mundi kynna nýju ríkisstjórnina formlega fimmtudaginn 21. júní. Ríkisstjórnin hefur 29 þingmanna meirihluta.
Evangelos Venizelos, formaður Pasok, sagði þriðjudaginn 19. júní að val ráðherra í nýja stjórn væri auðveldara en að velja menn til að koma fram fyrir hönd Grikklands í nýjum viðræðum við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um endurskoðun á aðhaldssamningnum sem þrengir mjög að grísku þjóðinni og ríkisstjórn landsins.
Fráfarandi fjármálaráðherra Grikklands, Giorgos Zanias, verður fulltrúi Grikkja á fundi fjármálaráðherra evru-ríkjanna í Lúxemborg fimmtudaginn 21. júní.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Frakkland: Fjárlagaráðherrann sem skaut undan skatti hættir við þingframboð
Jerôme Cahuzac, fyrrverandi fjárlagaráðherra Frakka, sem hrökklaðist frá embætti eftir að hafa sagt ósatt um eignir sínar og sætir nú rannsókn vegna skattsvika og leynireikninga í Sviss og Singapúr, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í auka-kosningu um hið gamla þingsæti sitt. Hann segist óttast að verða fyrir illvígum hatursárásum.
Howe lávarður segir Cameron hafa misst flokkstökin í ESB-málum
Howe lávarður segir að David Cameron, forsætisráðherra Breta, sé að missa tökin á Íhaldsflokknum vegna ágreinings um ESB-mál. Howe lávarður gegndi lykilhlutverki árið 1990 þegar Margaret Thatcher var hrakin úr forystu flokksins vegna ágreinings um ESB-mál.
Ítalía: Um 38% ungmenna án atvinnu
Um 38% ungmenna á Ítalíu á aldrinum 15-24 ára eru atvinnulaus skv. yfirliti, sem birt er á fréttavef BBC í tilefni af mótmælum um 100 þúsund Rómarbúa vegna heimsóknar Angelu Merkel til Ítalíu í gær. Atvinnuleysi er langmest í þessum aldursflokki á Grikklandi og Spáni, eins og áður hefur komið fram en Ítalía er í þriðja sæti.
Ný könnun: 46% Breta vilja yfirgefa Evrópusambandið
Samkvæmt nýri skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Sunday Telegraph í London vilja 46% Breta yfirgefa Evrópusambandið.