Leiðtogum ESB-ríkja sem sátu fund G20 leiðtogahópsins í Los Cabos 18. og 19. júní tókst að kaupa sér tíma gagnvart öðrum þátttakendum í fundinum með fyrirheiti um róttækar aðgerðir til að leysa skulda- og efnahagsvandann sem ríkir á evru-svæðinu. Þeir hétu nánari samruna á sviði bankamála og að þeir mundu ýta undir hagvöxt.
Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), sagði eftir fundinn: „Í Los Cabos var sáð fræjum sam-evrópskrar endurreisnaráætlunar.“ Hún sagði mikils að vænta af fundi leiðtoga ESB-ríkjanna í Brussel 28. og 29. júní.
AFP-fréttastofan segir að Barack Obama Bandaríkjaforseti hafi talað fyrir munn margra leiðtoga þegar hann lýsti létti yfir að innan ESB áttuðu menn sig betur á því en áður hve miklu skipti að þeir tækju skjótar ákvarðanir. Forsetinn sagði: „Ég er sannfærður um að á næstu vikum mun ESB draga upp mynd af því hvert við þurfum að fara.“
Í sameiginlegri yfirlýsingu eftir G20-fundinn segir að leiðtogarnir heiti að „taka nauðsynlegar aðgerðir til að auka alþjóðlegan hagvöxt og endurvekja traust“.
Leiðtogar stærstu ESB-ríkjanna samþykktu að „kanna markviss skref til að koma á samhæfðari fjármálaskipan, þar á meðal á sviði bankaeftirlits, slitameðferðar og endurfjármögnunar og varðandi innstæðutryggingar“. Þeir sögðu að evru-ríkin mundu „grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana“ til að koma á jafnvægi innan svæðisins þar á meðal til að sporna við myndun „uppsafnaðs vanda“ sem veikti ríkisstjórnir þar sem þær þyrftu að safna meiri og meiri skuldum til að endurfjármagna banka.
Þá kemur fram í ályktuninni að versnuðu efnahagsaðstæður enn á ný mundu ríki með meira svigrúm en önnur í ríkisfjármálum leitast við að samræma aðgerðir sínar og huga að ríkisfjármálaðgerðum til að ýta undir einkaneyslu.
Bandaríkin, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Seðlabanki Evrópu hvetja til meiri bankasamruna innan ESB í von að með því skapist meira traust milli banka en nú er.
Barack Obama hefur áhyggjur af því að hin neikvæða efnahagsþróun í ESB veiki efnahag Bandaríkjanna og dragi þannig úr líkum á að hann nái endurkjöri í forsetakosningunum í nóvember 2012. Forsetinn efndi til sérstaks fundar til hliðar við G20 fundinn með Angelu Merkel Þýskalandskanslara, François Hollande Frakklandsforseta, Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, David Cameron, forsætisráðherra Breta, José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Herman Van Rompuy, forseta leiðtogaráðs ESB.
Skömmu eftir þennan sérstaka fund Bandaríkjaforseta og ESB-leiðtoganna var orðalag G20 ályktunarinnar staðfest en AFP segir að litlar skýringar hafi verið gefnar á því hvað framundan sé þótt í ályktuninni sé að finna orðalag að meira sé í húfi en áður að komast að skjótri niðurstöðu um lausn.
Þýska fréttastofan Deutsche Welle hefur eftir Robert Shapiro, efnahagsmálaráðgjafa Obama. að G20 leiðtogafundurinn hafi skilað árangri vegna þess þrýsting sem þar hefði komið fram og kröfu um breytingar á stefnu evru-ríkjanna, einkum hjá Angelu Merkel. „Í fyrsta sinn samþykkti hún með trega að nota mætti fjármuni evru-svæðisins til að jafna reikninga ríkisstjórnanna á Spáni og í Ítalíu.
Merkel sagðist koma frá fundinum í Los Cabos með staðfestingu evru-ríkjanna á pólitískum vilja til að viðhalda hinni sameiginlegu mynt. Hún sagði að rætt hefði verið um „stofnun innan ESB sem mundi hafa eftirlit með bönkum“ og „meiri aðgerðir í þágu hagvaxtar og samþykkt reglna um sameiginlega kvarða varðandi innstæðutryggingar og um endurskipulag bankakerfisins“.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...