Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, hefur gefið til kynna breytta stefnu flokksins í málefnum innflytjenda að því er fram kemur í Guardian í dag. Hann leggur nú áherzlu á mikilvægi þess að veita aðstoð því fólki, sem nú þegar hafi búsetu í Bretlandi og segir flokk sinn hafa verið of fljótan á sér að lýsa áhyggjum fólks vegna of margra innflytjenda sem fordómum.
Miliband hvetur til lagabreytinga, sem geri ráðningastofum ókleift að taka ódýrt erlent vinnuafl fram yfir innlent. Hann vill breyta lögum, sem leiða til þess að brezk fyrirtæki freistast fremur til þess að notast við ódýrt erlent vinnuafl. Annar talsmaður Verkamannaflokksins segir að brezk stjórnvöld hafi í stjórnartíð Verkamannaflokksns fengið rangar upplýsingar um áætlaðan fjölda innflytjenda eftir inngöngu Bretlands í Evrópusambandið. Hann segir að gert hafi verið ráð fyrir 15 þúsund innflytjendum en sá fjöldi hafi komið til Southamptons eins. Fjöldi innflytjenda hafi haft áhrif á launakjör og opinbera þjónustu.
Miliband segir að ríkisstjórn Verkamannaflokksins hafi hleypt of mörgum innflytjendum il Bretlands frá austuhluta Evrópu á of skömmum tíma og nefndi Pólland í því sambandi.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.