Áberandi spenna og ágreiningur var á milli leiðtoga fjögurra Evrópuríkja á fundi þeirra í Róm í gær. Gekk það svo langt að í lok blaðamannafundar þeirra fjögurra, Angelu Merkel, Francois Hollande, Mariano Rajoy og Mario Monti sá Monti ástæðu til að minna sérstaklega á að vandi evrunnar hefði hafizt árið 2003, þegar Frakkar og Þjóðverjar, hefðu með samþykki Ítala, brotið starfsreglur evruríkjanna, sem þeir höfðu sjálfir haft forystu um að setja. Á fundinum vorur þrír á móti einum. Merkel stóð ein gegn tillögu um útgáfu sameiginlegra evrubréfa og um að nota neyðarsjóðina beint til að leysa vanda fjármálafyrirtækja.
Financial Times bendir á, að fundinum hafi verið ætlað að tryggja samstöðu þessara ríkja fyrir leiðtogafund ESB, sem verður í næstu viku en niðurstaðan hafi orðið sú að undirstrika ágreining þeirra um hvernig taka eigi á aðkallandi vandamálum. Á blaðamannafundinum sjálfum neitaði Merkel að taka undir tillögu hinna þriggja um að nota neyðarsjóðina til að bjarga bönkunum. Bæði Hollande og Monti lýstu hins vegar stuðningi við þær hugmyndir. Í þeim felst t.d. að neyðarsjóðirnir tveir mundu lána beint til spænsku bankana í stað þess að veita lánið til spænska ríkisins, sem lánaði það svo áfram. Sú leið, sem Þjóðverjar vilja fara þýðir að skuldir spænska ríkisins hækka sem láninu nemur.Merkel segir að verði lánað beint til bankanna sé engin leið að hafa stjórn á því hvað þeir geri við peningana.
FT bendir á, að bæði Oli Rehn og Christine Lagarde hafi lýst sömu sjónarmiðum og Hollande, Monti og Rajoy.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.