Carl Hahn lagði grunninn að velgengni Volkswagen á okkar tímum segir Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, í Sunnudagsmogganum 24. júní og vísar þar til framsýni Hahns, sem nú er 86 ára, við rekstur Volkswagens þar sem Hahn. var stjórnarformaður í 11 ár, frá 1982 til 1993. Þegar Hahn leggur mat á stöðu Íslands í samtali við Karl segist hann aldrei hafa sótt um aðild að ESB í sporum Íslendinga. Þjóðin sé mun betur sett utan ESB en innan.

Carl Hahn dvaldist hér á landi í nokkra daga fyrir skömmu en hann situr í stjórnum fjölda fyrirtækja þar á meðal á Íslandi. Hann þekkir því til stöðu Íslands en er auk þess eindreginn talsmaður aukins samruna innan ESB.
Þegar Karl Blöndal spyr Carl Hahn um afstöðu hans til ESB-umsóknar Íslands svarar hann:
„Ég hefði aldrei sótt um aðild að Evrópusambandinu í ykkar sporum. Ísland er langt í burtu. Ísland er lítið, en þó stórt í sjálfstæði sínu vegna mikilvægrar stöðu sinnar. Ísland er með fádæmum ríkt, en sem lítil þjóð getur landið náð hvað bestri ávöxtun þessarar auðlegðar með því að vera sjálfstætt, en ekki 28. landið í Evrópusambandinu, sem á í slíkum vandræðum með sjálft sig og getur örugglega ekki sett vandamál Íslands á oddinn. Ef maður horfir raunsætt á málið - og hér er ekki um að ræða ásakanir á hendur neinum á Íslandi - er rétt að segja eins og Vaclav Klaus í Prag: “Við göngum ekki í evruna.„ Þegar Evrópa nær að komast fram á við, skipuleggja sig og reka öfluga viðskipta- og fjármálapólitík og þá um leið evrupólitík verður hægt að taka inngöngu til athugunar, en í dag er ljóst að hið ótrúlega ríkidæmi Íslands, sem ekki er bara fólgið í 720 þúsund ferkílómetrum af hafi til fiskveiða og miklu pólitísku sjálfstæði og styrk og hagkvæmri stöðu eins og kemur fram í því að kínverskir ráðamenn leita ráða hjá og heimsækja núverandi forseta, sem alls staðar kemur að opnum dyrum, yrði ekki til framdráttar með sama hætti og yrði Ísland enn eitt aðildarríki Evrópusambandsins. Þá myndu kínverskir valdamenn ekki leita hingað.“
Þá segir í grein Karls Blöndals í Sunnudagsmogganum:
„Hahn kvaðst telja að Íslendingar væru vegna mikilvægrar legu landsins, sjálfstæðis, góðrar menntunar, fæðingartíðni og góðs árangurs í að vinna á fjármálakreppunni í framúrskarandi stöðu til að selja hérlenda framleiðslu og þjónustu.
„Þess utan furða ég mig á því hvernig land með 320 þúsund íbúum fer að því að reka öll þessi sendiráð, eiga alla þessa stjórnmálamenn, vera með ríkisstjórn, hvort sem hún er talin góð eða slæm, um það get ég ekki dæmt, en landið gengur, viðskiptalífið virkar og fólkið er vel menntað. Það er ótrúlegt að svo lítið land sé í aðstöðu til þess að reka flugfélag með góðum árangri og alþjóðlegan flugvöll, fiskiskipaflota og landhelgisgæslu og halda við svo umfangsmiklu gatnakerfi. Sennilega hefur ekkert land í heiminum lagt jafnmarga kílómetra af götum á hvern íbúa og Ísland.“
Hahn segir að út frá tölfræðinni hljóti, sama hvert litið sé í íslensku samfélagi, að mæða mikið á, en það sé ekki að sjá.
“Þegar ég skoða mig um í Reykjavík og sé þessi grænu svæði og mikið af nýbyggingum, sem bera fjölbreytni í húsagerðarlist vitni, anda að mér hreinu loftinu og velti fyrir mér þeirri fyrirmyndarstöðu, sem Ísland nýtur í umhverfismálum og hvernig stjórnmálin leitast við að bæta hana með því að ýta undir notkun bíla, sem ekki blása koltvísýringi út í andrúmsloftið, get ég ekki annað sagt en frábært.
Enginn áttar sig á því þegar rætt er um Ísland hvað hér búa fáir, það er einfaldlega land með vægi í huga fólks. En þið eruð í góðri stöðu bæði hvað varðar vatn og orku og það opnar möguleika í Kína, þar sem vatnsbúskapur er hvað erfiðastur í heiminum, en einnig í Afríku og víðar þar sem Íslendingar geta lagt sitt af mörkum til að bæta hlutskipti fólks.„
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...