
Spánn lagði fram í morgun formlega beiðni um aðstoð við bankana frá ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu en Daily Telegraph telur að í þeirri beiðni sé engin sérstök upphæð nefnd. Irish Times segir hins vegar að efnahagsráðherra Spánar hafi staðfest að ókað sé eftir aðstoð allt að 100 milljörðum evra.
Spánverjar hafa fengið fyrirheit um allt að 100 milljarða evra aðstoð. Tvö endurskoðunarfyrirtæki telja að spænskir bankar þurfi á 62 milljörðum að halda. Aðstoðin verður veitt til sjóðs í eigu spænska ríkisins, sem síðan deilir út lánum til einstakra banka.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Howe lávarður segir Cameron hafa misst flokkstökin í ESB-málum
Howe lávarður segir að David Cameron, forsætisráðherra Breta, sé að missa tökin á Íhaldsflokknum vegna ágreinings um ESB-mál. Howe lávarður gegndi lykilhlutverki árið 1990 þegar Margaret Thatcher var hrakin úr forystu flokksins vegna ágreinings um ESB-mál.
Ítalía: Um 38% ungmenna án atvinnu
Um 38% ungmenna á Ítalíu á aldrinum 15-24 ára eru atvinnulaus skv. yfirliti, sem birt er á fréttavef BBC í tilefni af mótmælum um 100 þúsund Rómarbúa vegna heimsóknar Angelu Merkel til Ítalíu í gær. Atvinnuleysi er langmest í þessum aldursflokki á Grikklandi og Spáni, eins og áður hefur komið fram en Ítalía er í þriðja sæti.
Ný könnun: 46% Breta vilja yfirgefa Evrópusambandið
Samkvæmt nýri skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Sunday Telegraph í London vilja 46% Breta yfirgefa Evrópusambandið.
Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa
Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...