Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, tók ákvörðun um að lækka laun ráðherra og aðstoðarráðherra um 30% en hann fækkaði ráðherum ekki eins mikið og áður var talið að hann mundi gera. Þeir verða 39 en ekki 28 eins og sagt var hér á Evrópuvaktinni. Ekathimerini segir að launalækkun ráðherra mælist vel fyrir meðal almennings en fjármálamarkaðir yppti öxlum. Hins vegar bendi fjöldi ráðherra til að Samaras hafi þurft að leita margra málamiðlana. Í hinni nýju ríkisstjórn séu heldur ekki eins margir sérfræðingar, eins og Samaras hafi stefnt að.
Vefmiðillinn segir að ríkisstjórnin hljóti að ganga á bak orða sinna í sumum málum. Hún verði að fækka opinberum starfsmönnum á næstu árum og hún verði að lækka laun sumra forréttindastétta eins og t.d.presta en laun þeirra hafi ekki verið lækkuð á undanförnum misserum.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Framkvæmdastjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu
Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...
Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara
Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...
Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildarviðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.
David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...