Á leiðtogafundi ESB-ríkja, sem hefst á fimmtudag, verður til umræðu tillaga um að eins konar yfirfjármálaráðuneyti verði sett upp í Brussel, sem hafi vald til að breyta fjárlögum aðildarríkjanna, ef þau fari út fyrir þau mörk, sem sett hafi verið um skuldir og fjárlagahalla. Þessar breytingar yrði hins vegar að samþykkja af öllum öðrum aðildarríkjum. Í orði kveðnu yrðu breytingarnar kallaðar „tillögur“ en Evrópusambandið hefur yfir að ráða tækjum til að refsa ríkjum, sem ekki fylgja þeim eftir með þungum sektum.
Fá þessu segir Financial Times í dag, sem hefur undir höndum drög að þessum tillögum, sem blaðið tekur fram, að kunni að breytast fyrir fundinn. Höfundar þessara tillagna eru Herman Van Rompuy, forseti ráðherraráðsins, Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar, Mario Draghi, aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu og Jean-Claude Juncker, formaður Evruhópsins.
Fjórmenningarnir hittust í gær til a leggja lokahönd á drögin, sem átti að senda til höfuðborga aðildarríkja í gærkvöldi.
Í drögunum er gert ráð fyrir að evruríkin komi sér saman um hámark skuldastöðu og fjárlaga. Ef ríki þarf að auka lántökur verði það að fá samþykki annarra evruríkja fyrirfram. Drögin gera ennfremur ráð fyrir að sameiginlegt fjármálaeftirlit evruríkja hafi víðtækari völd en upphaflega var gert ráð fyrir.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.