Ítalir eru sigri hrósandi föstudaginn 29. júní yfir tveimur „ofur-Maríoum“ Balotelli og Monti eftir sigur þeirra á Þjóðverjum í undanúrslitum EM 2012 og vegna niðurstööu leiðtogafundar evru-ríkjanna.
Ítalska blaðið Corriere della Sera tengdi þessa tvo atburði og birti skopmynd af Monti forsætisráðherra á forsíðu sinni þar sem hann var klæddur eins knattspyrnudómari og beinir flautu í átt að Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Á milli þeirra Monti og Merkel birtir blaðið tölur sem sýna muninn á ávöxtunarkröfunni á hendur Ítölum annars vegar og Þjóðverjum hins vegar.
Mið-vinstrablaðið La Republicca segir að Monti hafi dregið upp „nei-kortið“ í Brussel og sett Þjóðverjum „úrslitakosti“: ekki yrði gefið grænt ljós á vaxtarsamning án öryggisnets fyrir ítalska og spænska ríkið gagnvart mörkuðunum.
Corriere della Sera og dagblaðið Messagero hylltu Monti fyrir „að láta ekki undan“ um leið og þau lofuðu „töframenn Ítalíu“ í EM 2012.
Dálkahöfundur Corriere della Sera segir að Þjóðverjar ráði málum í ESB en ekki í evrópskri knattspyrnu: „Í knattspyrnu erum við Þjóðverjar,“ segir höfundurinn.
Þjóðverjinn Benedikt 16. páfi óskaði Ítölum til hamingju með sigurinn yfir Þjóðverjum. „Sem Rómarbiskup gleðst Benedikt 16. með söfnuði sínum,“ sagði Federico Lombardi, talsmaður páfa.
Það var ekki nóg með að nafnarnir knattspyrnuhetjan og forsætisráðherrann væru tengdir í fréttum vegna nafna sinna heldur var þriðji Mario-inn, Mario Draghi, formaður bankastjórnar Seðlabanka Evrópu, einnig dreginn inn í myndina. Margir telja að hann hafi bjargað evrunni undir árslok 2011 með því að dæla út peningum til að endurfjármagna banka.
„Hvort sem um er að ræða mörk eða vexti: Ítalir treysta á Mario-áhrifin“ sagði í fyrirsögn viðskiptablaðsins Sole-24 Ore næst við ljósmynd af Balotelli með bol sinn í fanginu, Monti í símanum og Draghi og þá sagði: „Mikilvægi þess að heita Mario“.
Mario Monti sagði eftir leiðtogafund evru-ríkjanna að Ítalir hefðu unnið tvöfaldan sigur. Hafa orð hans verið túlkuð sem skot á Þjóðverja vegna sigursins í Varsjá og á Merkel vegna niðurstöðu fundarins.
Þýska blaðið Der Spiegel er á þessu sama róli þegar það segir: „Monti kom út af næturfundinum sem raunverulegur sigurvegari eftir að hafa brotið andstöðu Angelu Merkel kanslara á bak aftur rétt eins og ítalska skyttan rauf vörn Þjóðverja í Varsjá.“
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum
Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....
Þýzkaland: Aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka að hluta
Samkvæmt fréttum Deutsche-Welle hefur Bundestag, þýzka þingið samþykkt lög um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi með þeim fyrirvara þó, að hann ber að framkvæma ef umsvif sem rekja má til fjárfestingarbankastarfsemi ná 100 milljörðum evra eða um 20% af efnahagsreikningi.
Ítalía: Álagningu fasteignaskatta frestað- einn milljarður í vinnuhvetjandi aðgerðir
Hin nýja ríkisstjórn Enrico Letta á Ítalíu tilkynnti í gær fyrstu aðgerðir til tilslökunar í efnahagsmálum. Álagningu óvinsæls fasteignaskatts hefur verið frestað að kröfu flokks Berlusconi og einn milljarður evra settur í aðgerðir, sem eiga að vera vinnuhvetjandi.