Um 78% Þjóðverja eru andvígir því að framselja meira pólitískt vald frá þýska þinginu til ESB. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem sagt var frá fimmtudaginn 28. júní. Angela Merkel Þýskalandskanslari telur hins vegar að meira framsal á fullveldi sé nauðsynlegt til að tryggja örugga framtíð evru-samstarfsins.
Fyrirtækið YouGov spurði Þjóðverja hvort þeir teldu bestu leiðina til að tryggja samstarf Þýskalands innan ESB fólgið í því að framselja meira vald í hendur stofnana ESB – aðeins 28% voru þessarar skoðunar.
Rúmlega 60% þeirra 1.037 sem voru spurðir sögðust hafa áhyggjur af því að Þjóðverjar létu frá sér of mikið ákvörðunarvald ef þeir veittu ESB-stofnunum rýmra umboð til að stjórna málum sem nú lúta þýskri stjórn.
Samkvæmt könnuninni vill meirihluti Þjóðverja að það verði lagt undir þjóðina í atkvæðagreiðslu ef ganga eigi til nánara pólitísks samstarfs innan ESB. Yrði að gert sögðust 78% mundu hafna tillögu um framsal fullveldis í pólitísku sambandi undir merkjum ESB. Aðeins 17% töldu að þýska þingið, Reichstag, ætti að taka ákvörðun um nánari ESB-samruna.
Könnun var gerð 26. til 28. júní í síma og á netinu.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Stokkhólmur: Kveikt í bílum-íkveikjur í níu borgarhverfum-vandamál tengd innflytjendum
Í gærkvöldi og í morgun var kveikt í bílum í Stokkhólmi og ólæti breddust út til margra hverfa borgarinnar að því er fram kemur í Financial Times, sem segir að þetta hafi gerzt þrjá daga í röð. Lögreglan í Stokkhólmi hefur handtekið einhverja og segir stöðuna flókna vegna fjölda hverfa en bendir á, að staðan sé rólegri í Husby, hverfi, þar sem margi innflytjendur eru saman komnir.
Ítalía: Milljónir hafa ekki efni á að hita heimili sín eða borða kjöt
Milljónir Ítala hafa ekki efni á að hita upp heimili sín eða borða kjöt segir í nýrri skýrslu frá hagstofu Ítalíu, ISTAT. Efnahagslægð, sem staðið hefur í tvö ár hefur komið þungt niður á almennum borgurum, sem ganga meira og meira á sparnað sinn. Fjöldi þess fólks sem stendur svo höllum fæti, sem h...
Ný ríkisstjórn gerir hlé á aðildarviðræðum- nýjar viðræður ekki án þjóðaratkvæðagreiðslu
Af fréttum Morgunblaðsins í dag má ráða að ný ríkisstjórn muni gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og að þær verði ekki teknar upp að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt heimildum Evrópuvaktarinnar verður gerð úttekt á stöðu viðræðnanna eins og þær standa nú og stöðu mála innan Evrópusambandsins.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.