José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, lýsti þriðjudaginn 3. júlí reiður yfir undrun vegna þess að það hlakkaði í þingmönnum breska Íhaldsflokksins vegna vandræðanna á evru-svæðinu. Hann hafnaði einnig kröfu þingmannanna um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Breta að ESB.
„Leyfið mér að segja ykkur að mér finnst undarlegt að þið virðist gleðjast yfir erfiðleikunum á evru-svæðinu,“ sagði Barroso við þingmenn Íhaldsflokksins á ESB-þinginu í Strassborg. „Það er auk þess í hróplegri andstöðu við afstöðu leiðtoga ykkar, Camerons forsætisráðherra.“
Barroso sagði að um það ríkti einhugur einnig með ríkjum utan evru-svæðisins að nauðsynlegt væri að styrkja evru-samstarfið. Það væru hrein mistök að reyna að kljúfa evru-svæðið frá ESB að öðru leyti.
„Ég undrast einnig af hve mikilli léttúð sumir ykkar mæla með því við ýmis aðildarríki að segja skilið við evruna,“ sagði Barroso. Það væri skoðun Camerons að fyrir Grikki væri best að halda í evruna.
Barroso beindi orðum sínum einkum til íhaldsþingmannsins Martins Callanans sem hafði sagt að með björgunaraðgerðum við banka köstuðu menn skattfé almennings á glæ og hann hvatti nokkur ríki að hætta að nota evru.
Callanan sagði: „Til er önnur leið: hún felst í því að minnka evru-svæðið svo að nokkrar þjóðir fái tækifæri til að lækka gengið og þannig að ná hlutfallslegri samkeppnisstöðu að nýju.“ Það kynni að verða pólitískt stórslys fyrir klappstýrur evrunnar en væri skásti kosturinn af mörgum slæmum fyrir ýmis lönd.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...