
Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, segir í samtali við Wall Street Journal í dag, að vandamál evruríkjanna hafi ekki dregið úr hvatningum hennar um að Ísland gangi í Evrópusambandið. „Mér líkar hugmyndin“, segir hún. „Það er mikilvægt fyrir Ísland, litla þjóð, að vera í bandalagi við góða nágranna.“ Blaðið náði tali af Oddnýju í Osló og segir mjög sjaldgæft að hún veiti slík viðtöl (in a rare interview). Ráðherrann viðurkennir í samtalinu, að það séu ýmsir kostir við að hafa eigin gjaldmiðil en segir að það sé dýrt. Hún útskýrði að sögn WSJ hins vegar ekki hver sá kostnaður væri.
Fjármálaráðherra segir í viðtalinu: Við eigum að fara alla leið (We should go the whole way). Wall Street Journal segir að ummæli fjármálaráðherrans séu vísbending um að þrátt fyrir vandamál evruríkjanna séu smáríki í jaðri Evrópu enn áköf (eager) í að gerast aðilar að evrunni.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....
Þýzkaland: Aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka að hluta
Samkvæmt fréttum Deutsche-Welle hefur Bundestag, þýzka þingið samþykkt lög um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi með þeim fyrirvara þó, að hann ber að framkvæma ef umsvif sem rekja má til fjárfestingarbankastarfsemi ná 100 milljörðum evra eða um 20% af efnahagsreikningi.
Ítalía: Álagningu fasteignaskatta frestað- einn milljarður í vinnuhvetjandi aðgerðir
Hin nýja ríkisstjórn Enrico Letta á Ítalíu tilkynnti í gær fyrstu aðgerðir til tilslökunar í efnahagsmálum. Álagningu óvinsæls fasteignaskatts hefur verið frestað að kröfu flokks Berlusconi og einn milljarður evra settur í aðgerðir, sem eiga að vera vinnuhvetjandi.
Gagnrýni Schäubles á hægferð framkvæmdastjórnar ESB veldur undrun og reiði ESB-embættismanns
Embættismaður framkvæmdastjórnar ESB (sem óskaði nafnleyndar) sagði við AFP-fréttastofuna föstudaginn 17. maí að gagnrýni Wolfgangs Schäubles, fjármálaráðherra Þýskalands, á framkvæmdastjórnina fyrir að bregðast of hægt við vandamálum innan ESB eins og atvinnuleysi ungs fólks væri „óskiljanleg ... o...