Laugardagurinn 18. maí 2013

Hollande boðar 7,2 milljarða skattahækkun á fyrirtæki og auðmenn


4. júlí 2012 klukkan 17:06

François Hollande Frakklandsforseti hefur kynnt áform um að hækka skatta á fyrirtæki og ríkustu Frakka um 7,2 milljarða evra. Hann ætlar að innheimta 2,3 milljarða evra gjald í eitt skipti af fjölskyldum með 1,3 milljón evra eða meira í árstekjur.

François Hollande

Þá verður lagður sérstakur kattur á stóra banka og olíufélög. Talið er að hann gefi 1,1 milljarð evra í tekjur fyrir ríkið.

Franska ríkisendurskoðunin sagði fyrr í vikunni að hin nýja stjórn sósíalista í Frakklandi yrði að fylla upp í 10 milljarða evru gat í ríkisfjármálum á þessu ári. Frakkar hafa heitið því að halli á ríkissjóði verði ekki meiri en 4,5% í ár miðað við 5,2% árið 2011.

Þriðjudaginn 3. júlí varð ríkisstjórnin að lækka spá um hagvöxt á þessu ári og hinu næsta, hann er talinn verða 0,3% í ár og 1,3% árið 2013, áður hafði verið miðað við 0,5% og 1,7%.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?

Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....

Þýzkaland: Aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka að hluta

Samkvæmt fréttum Deutsche-Welle hefur Bundestag, þýzka þingið samþykkt lög um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi með þeim fyrirvara þó, að hann ber að framkvæma ef umsvif sem rekja má til fjárfestingarbankastarfsemi ná 100 milljörðum evra eða um 20% af efnahagsreikningi.

Ítalía: Álagningu fasteignaskatta frestað- einn milljarður í vinnuhvetjandi aðgerðir

Hin nýja ríkis­stjórn Enrico Letta á Ítalíu tilkynnti í gær fyrstu aðgerðir til tilslökunar í efnahagsmálum. Álagningu óvinsæls fasteignaskatts hefur verið frestað að kröfu flokks Berlusconi og einn milljarður evra settur í aðgerðir, sem eiga að vera vinnuhvetjandi.

Gagnrýni Schäubles á hægferð framkvæmda­stjórnar ESB veldur undrun og reiði ESB-embættismanns

Embættismaður framkvæmda­stjórnar ESB (sem óskaði nafnleyndar) sagði við AFP-fréttastofuna föstudaginn 17. maí að gagnrýni Wolfgangs Schäubles, fjármála­ráðherra Þýskalands, á framkvæmda­stjórnina fyrir að bregðast of hægt við vandamálum innan ESB eins og atvinnuleysi ungs fólks væri „óskiljanleg ... o...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS