Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Nouriel Roubini: Finnar kunna að verða fyrstir til að segja skilið við evruna


8. júlí 2012 klukkan 14:31

Finnar kunna að segja skilið við evruna á undan Grikkjum að mati Nouriels Roubinis, heimsþekkts hagfræðings. Kemur þessi skoðun heim og saman við vangaveltur margra annarra um upplausn evru-samstarfsins, flestir hafa þó verið þeirrar skoðunar að Grikkir yrðu fyrstir til að velja aðra mynt en evru.

Nouriel Roubini

Nouriel Roubini hefur samið ritgerð undir fyrirsögninni: „Fix it or fixit“. Í þessu felst orðaleikur „fix it“ þýðir „kippið í lag“ en „fixit“ er sett saman úr orðunum Finnland og exit (útgangur). Fyrirsögnin gefur til kynna að Finnar slíti evru-samstarfinu verði því ekki breytt til betri vegar.

Roubini færir nokkur rök fyrir skoðun sinni, meðal annars þau að margir nágrannar Finna noti ekki evru. „Úr því að engin norræn þjóð notar evru hvaða ávinning hafa Finnar þá af henni?“ spyr Roubini.

Önnur rök eru þau að Finnar geti tekið upp sömu aðferð og Danir og fest gjaldmiðil sinn við evruna. Þá minnki útgjöld finnska ríkisins með því að velja „fixit“. Utan evru-samstarfsins þurfi Finnar ekki að greiða til ESM, hins varanlega björgunarsjóðs evrunnar.

„Þótt þeir sem formlega styðja “fixit„ séu nú í minnihluta eykst umræða heima fyrir um kosti og galla aðildar. Nálgist Grikkir fallið fram af brúninni og þarfnist Ítalir og Spánverjar meiri stuðning evru-ríkja munu Finnar leggja mat á hvort meiri áhætta felist í evru-aðild en kostir,“ segir Roubini.

Nouriel Roubini er hagfræðiprófessor við New York Univeristy. Hann sagði fyrir um fjármálakreppuna 2008. Kölluðu fjölmiðlar hann þá dr. Doom, dómsdagspámann, vegna svartsýni og „hrakspáa“. Hann neitar að að láta stjórnast af svartsýni og hefur lagt til að sér sé frekar gefið viðurnefnið dr. Realist, raunsæismaðurinn.

Heimild:epn.dk

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim

Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokka funda síðdegis um ERT

Leiðtogar stjórnar­flokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkis­stjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnar­flokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.

NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001

Þjóðaröryggis­stofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislög­regla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...

Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða

Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evru­svæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS