Sunnudagurinn 19. maí 2013

Reuters: Nýtt ósýnilegt „járntjald“ að verða til í Evrópu á milli lánardrottna í N-Evrópu og skuldara í S-Evrópu


9. júlí 2012 klukkan 09:20
Mattes

Er nýtt ósýnilegt „járntjald“ að rísa í fjármálaheiminum í Evrópu? Reuters-fréttstofan heldur því fram, að svo sé og að gagnstætt því, sem áður var þegar Evrópa skiptist í Vestur-Evrópu og Austur-Evrópu sé heimsálfan nú að skiptast á milli Norðu-Evrópu og Suður-Evrópu. Á milli sé að verða til fjármálalegt járntjald. Í Norður-Evrópu búi þjóðir, sem eru lánardrottnar Suður-Evrópu og búi sjálfar við lága vexti og lágan fjármálakostnað almennt. Í Suður-Evrópu búi skuldsettar þjóðir, sem verði að borga svo háa vexti að ógni sjálfstæði þeirra. Reuters telur að þetta nýja járntjald sé ekki síður hættulegt en það, sem hrundi með Berlínarmúrnum.

Í fréttaskýringu Reuters er því líka haldið fram, að evrusvæðið sundrist hraðar en ESB takist að tjasla því saman á ný.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa

Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...

Ítalir efna til fjöldamótmæla í Róm - Merkel líkt við nasistaforingja

Um 100.000 manns mótmæltu í Róm laugardaginn 18. maí. Forystumenn verkalýðs­samtaka stjórnuðu aðgerðunum undir rauðum fánum og markmið þeirra var að knýja fram stefnubreytingu hjá nýrri ríkis­stjórn landsins undir forsæti Enricos Letta sem kemur úr röðum vinstri manna. Þá einkenndust mótmælin einnig a...

ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum

Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.

Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?

Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS