
Financial Times segir í dag, að norsk stjórnvöld eigi þann kost að stöðva verkfall, sem staðið hefur yfir á olíuborpöllum í 15 daga og getur leitt til algerrar stöðvunar á olíuframleiðslu frá og með morgundeginum. Hins vegar hafi verkalýðshreyfingin hvatt ríkisstjórn Verkamannaflokksins til að doka við og láta olíuiðnaðinn svitna í nokkra daga. Krafa starfsmanna á olíuborpöllum er sú, að þeir geti farið á full eftirlaun 62 ára en ekki 65 ára. FT segir að sú krafa njóti lítillar samúðar almennings í Noregi.
Nú þegar hefur starfsemi stöðvast á níu borpöllum og framleiðsla Norðmanna minnkað um 15%. Verðhækkun hefur orðið á olíu á heimsmarkaði af þessum sökum.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...