Fjármálaráðherrar hafa samþykkt að Yves Mersch, seðlabankaastjóri Lúxemborgar, taki sæti í stjórn Seðlabanka Evrópu. Skýrt var frá þessu mánudaginn 9. júlí en ráðherrarnir sitja fund í Brussel. Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar og formaður evru-ráðherraráðsins, hafði sett kjör Mersch sem skilyrði fyrir að hann sæti áfram sem formaður hópsins.
Niðurstaða fjármálaráðherranna 17 verður lögð fram á fundi fjármálaráðherra ESB-ríkjanna 27 þriðjudaginn 10. júlí.
Mersch (62 ára) hefur verið seðlabankastjóri Lúxemborgar síðan 1998. Hann sest í seðlabankastjórnina í Frankfurt í stað Spánverjans Manuels Gonzalez Paramos sem hvarf úr bankastjórninni í maí. Fyrir fundinn hermdu fréttir að Spánverjar vildu halda sætinu en öðrum evru-ríkisstjórnum þætti nóg að Ítali gegndi formennsku í henni og Portúgali varaformennsku.
Stefnt er að því að fjármálaráðherrar ESB-ríkjanna taki ýmsar ákvarðanir um ráðningu manna eða skipan þeirra í stjórnir og ráð. Tengist þetta öðrum þræði framtíð Junckers á formannsstólnum en kjörtímabili hans lýkur þriðjudaginn 17. júlí.
Angela Merkel Þýskalandskanslari hefur lagt til að Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, taki við af Juncker og Schäuble hefur látið í ljós áhuga á formennskunni. Franska ríkisstjórnin leggst hins vegar gegn Schäuble.
Juncker segist tilbúinn til að gegna formennsku næstu sex mánuði til að ESB gefist meira ráðrúm til að hrinda í framkvæmd ráðstöfunum gegn skuldakreppunni.
AFP-fréttastofan hefur eftir heimildarmanni mánudaginn 9. júlí að samið verði um að Juncker gegn formennsku um ótiltekinn tíma enda muni hann ekki sitja annað 30 mánaða kjörtímabil.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum
Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....
Þýzkaland: Aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka að hluta
Samkvæmt fréttum Deutsche-Welle hefur Bundestag, þýzka þingið samþykkt lög um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi með þeim fyrirvara þó, að hann ber að framkvæma ef umsvif sem rekja má til fjárfestingarbankastarfsemi ná 100 milljörðum evra eða um 20% af efnahagsreikningi.
Ítalía: Álagningu fasteignaskatta frestað- einn milljarður í vinnuhvetjandi aðgerðir
Hin nýja ríkisstjórn Enrico Letta á Ítalíu tilkynnti í gær fyrstu aðgerðir til tilslökunar í efnahagsmálum. Álagningu óvinsæls fasteignaskatts hefur verið frestað að kröfu flokks Berlusconi og einn milljarður evra settur í aðgerðir, sem eiga að vera vinnuhvetjandi.