Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Spænskir bankar fá 30 milljarða evra neyðarlán í júlí að uppfylltum skilyrðum


10. júlí 2012 klukkan 08:45

Fjármálaráðherrar evru-ríkjanna ákváðu á níu klukkustunda löngum fundi sem hófst síðdegis mánudaginn 9. júlí í Brussel að veita spænskum bönkum 30 milljarða evru aðstoð innan allt að 100 milljarða evru lánsloforðs sem áður hafði verið gefið.

Stefnt er að því að lánið verði reitt af hendi fyrir lok mánaðarins. Þá ákváðu ráðherrarnir að Spánverjar fengju lengri frest en áður hafði verið samþykkt til að ná fjárlagahalla niður í 3%, skal markmiðið nást á árinu 2014 í stað 2013.

Jean-Claude Juncker, formaður evru-ráðherraráðsins, sagði að Spánverjum hefði verið veittur lengri frestur í glímunni við ríkisfjármálin vegna þess hve efnahagsstaðan væri slæm en ekki yrði slakað á neinum kröfum um aðgerðir í ríkisfjármálum.

Ráðherranir settu það skilyrði fyrir greiðslu 30 milljarða evru lánsins að starfsemi einstakra banka yrði endurskoðuð frá grunni auk þess sem úttekt yrði gerði á bankakerfinu í heild sagðo Olli Rehn, efnahagsmálastjóri ESB.

Hallinn á ríkissjóði Spánar er talinn verða 6,3% í ár, 4,5% árið 2013 og 2,8% árið 2014.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS