Alþjóða vinnumálastofnunin (ILO) telur að 4,5 milljónir starfa geti tapast á evrusvæðinu á næstu fjórum árum verði haldið fast við aðhaldsstefnuna í ríkisfjármálum þessara ríkja. Færi svo mundi atvinnuleysi í 17 evruríkjum fara í 22 milljónir manna.
Stofnunin segir að þá verði ekki bara evrusvæðið í vandræðum heldur efnahagskerfi heimsins alls.
ILO bendir á eftirfarandi til að ráða bót á þessari stöðu:
Gera lánveitingar til lítilla fyrirtækja að skilyrði fyrir aðstoð við banka.
Láta hluthafa sitja uppi með kostnað vegna björgunar banka.
Tryggja atvinnulausu ungu fólki verkþjálfun, menntun eða starfsnám.
Breyta launastigi í einstökum evrulöndum til að takast á við mismunandi framleiðni.
Í maí var atvinnuleysi á evrusvæðinu 11,1% og fjöldi atvinnulausra 17,56 milljónir.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.