Launakostnaður í Frakklandi 14% hærri en í Þýzkalandi
Francois Hollande, hinn nýkjörni forseti Frakklands,skammaði forráðamenn Peugeot bílasmiðjanna í gær fyrir boðaðar uppsagnir 6500-8000 starfsmanna og hvatti þá til að endurskoða afstöðu sína. Hollande sakaði stjórnendur fyrirtækisins um lygar og að fresta tilkynningu um uppsagnir af ásettu ráði fram yfir forsetakosningar og þingkosningar. Hann kvaðst mundu leggja hart að fyrirtækinu að halda áfram niðurskurði kostnaðar með öðrum hætti. Þessi ummæli Hollande komu í sjónvarpsviðtali í gær á Bastilludaginn.
Sérfræðingar á vegum ríkisstjórnarinnar munu yfirfara áætlanir fyrirtækisins og meta lögmæti aðgerða þess. Hollande sagði að samtöl sérfræðinga við fyrirtækið mundu snúast um að koma í veg fyrir uppsagnir en einnig leita annarra kosta fyrir starfsmenn.
Wall Street Journal segir að Peugeot eigi við sama vanda að stríða og aðrar bílasmiðjur í Evrópu, sala hefur minnkað fjögur ár í röð. Fyrirtækin standa uppi með fleiri samsetningarverksmiðjur og starfsmenn en þau þurfa á að halda.
Hlutabréfaverð í Peugeot féll svo mikið á föstudag að það hefur ekki verið lægra í aldarfjórðung. Hollande hafnaði kröfum aðalforstjóra Peugeot um að launakostnaður í Frakklandi yrði lækkaður en hann nemur nú 34,10 evrum á klukkustund og er 14% hærri en í Þýzkalandi og nær 20% hærri en meðaltalið í evruríkjunum. Hollande sagði að það væri of auðvelt að benda á launakostnað.
Fyrir kosningar samþykkti franska þingið hækkun virðisaukaskatts um 1,6% og var markmiðið að gera ríkinu kleift að lækka launatengd gjöld. Ríkisstjórn Hollande hefur horfið frá þeirri hækkun vsk., sem átti að taka gildi í september og hefur í þess stað áform um að hækka annan skatt, sem snertir bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara
Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...
Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildarviðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.
David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...