Olaf Olsen, prófessor og sagnfræðingur, sem m.a. hefur gegnt stöðu þjóðminjavarðar í Danmörku, gaf sovézkum sendiráðsstarfsmönnum í Kaupmannahöfn, persónuupplýsingar um 500 þekkta danska listamenn og vísindamenn á dögum kalda stríðsins, þegar hann starfaði í kommúnistahreyfingunni í Danmörku. Í tengslum við 75 af þessum nöfnum gaf hann nákvæmar upplýsingar um lífshlaup viðkomandi einstaklinga, hvar þeir stæðu í pólitík og hvort þeir væru vinsamlegir eða fjandsamlegir Sovétríkjunum.
Á grundvelli þessara upplýsinga fengu njósnastofnanir Sovétríkjanna m.a. betri þekkingu á aðstæðum Niels Bohr, eins þekktasta kjarnorkusérfræðings heims á þeim tíma.
Olaf Olsen segist nú í samtali við Jyllandsposten sjá eftir þessum gerðum sínum en hann er bróðir fyrrverandi dómsmálaráðherra jafnaðarmanna, Erling Olsen. Hann kveðst ekki hafa gerzt sekur um glæpsamlegt athæfi eða föðurlandssvik heldur hafi hann upplýst starfsmenn sovézka sendiráðsins svo að þeir vissu betur við hverja þeir voru að tala. Hann kveðst ekki mundu gera þetta í dag, en þá hafi hann verið ungur, glaður og barnalegur kommúnisti.
Í frétt Berlingske segir að danska leyniþjónustan hafi fengið upplýsingar um málið 1951 og viljað ákæra Olaf Olsen en frá því hafi verið horfið með tilliti til heimildarmanns leyniþjónustunnar. Sagnfræðingur við Kaupmanahafnarháskóla segir að um sé að ræða eitt alvarlegasta mál sinnar tegundar, sem upp hafi komið í Danmörku.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum
Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....
Þýzkaland: Aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka að hluta
Samkvæmt fréttum Deutsche-Welle hefur Bundestag, þýzka þingið samþykkt lög um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi með þeim fyrirvara þó, að hann ber að framkvæma ef umsvif sem rekja má til fjárfestingarbankastarfsemi ná 100 milljörðum evra eða um 20% af efnahagsreikningi.
Ítalía: Álagningu fasteignaskatta frestað- einn milljarður í vinnuhvetjandi aðgerðir
Hin nýja ríkisstjórn Enrico Letta á Ítalíu tilkynnti í gær fyrstu aðgerðir til tilslökunar í efnahagsmálum. Álagningu óvinsæls fasteignaskatts hefur verið frestað að kröfu flokks Berlusconi og einn milljarður evra settur í aðgerðir, sem eiga að vera vinnuhvetjandi.