Wolfgang Niersbach, forseti Knattspyrnusambands Þýskalands (DFB), segist sleginn vegna hneykslismáls sem tengist FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandinu, og hve léttilega Sepp Blatter, forseti FIFA, taki á málinu.

„Ég tala fyrir hönd allrar stjórnar DFB þegar ég segi að við séum furðu lostnir. Þetta er ömurleg staðreynd,“ sagði Niersbach eftir fund með knattspyrnudómurum í Svartaskógi í Þýskalandi laugardaginn 14. júlí.
Ásakanir um fjármálaspillingu allt aftur til tíunda áratugarins vegna þáverandi markaðsfyrirtækis FIFA, International Sport and Leisure (ISL), voru lagðar fyrir svissneskan dómara miðvikudaginn 11. júlí.
„Mál sem áður var talað um í hálfum hljóðum en vöktu grunsemdir um að allt væri ekki með felldu hafa nú komið fram í dagsljósið,“ sagði Niersbach. „Það má segja að ég sé barnalegur en þar til að þetta birtist opinberlega vildi ég ekki trúa því.“
Joao Havelange, fyrrverandi forseti FIFA, og fyrrverandi tengdasonur hans, Ricardo Teixera, fengu milljóna mútur vegna samninga í tengslum við heimsmeistaramót í knattspyrnu. Sepp Blatter, núverandi forseti FIFA, viðurkenndi á vefsíðu FIFA að hann væri „P1“, ónefndur embættismaður í skjali sem lagt var í dómsmálinu þar sem fram kemur að hann hafi vitað um að 1 milljón svissneskra franka (130 m. ISK) greiðslu frá ISL til Havelange.
Blatter sagði í yfirlýsingu frá FIFA að ekki mætti „dæma fortíðina með vísan til reglna líðandi stundar, geri menn það fella þeir siðferðilega dóma“. Í reglum FIFA á þessum árum var ekki skýrt bann við að þiggja mútur eins og nú er. Saksóknarar segja hins vegar að með mútugreiðslunum hafi verið brotið gegn svissneskum lögum.
„Ég er ekki síður miður mín vegna viðbragða forseta FIFA,“ sagði Niersbach. „Þegar í ljós kemur að engir smákarlar innan FIFA hafa stungið undan fé í eigin þágu og viðbrögðin eru aðeins þau að þetta hafi ekki verið bannað á þeim árum, viljum við í forystu DFB lýsa fullri skömm á þeim málflutningi.“
Sepp Blatter tók við embætti forseta FIFA af Havelange árið 1998. Hann var sjálfkjörinn forseti í fjórða sinn í júní 2012 eftir að framboði eina mótframbjóðanda hans, Mohameds bin Hammams var hafnað vegna ásakana um að hann hefði þegið mútur.
dw.de
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa
Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...
Ítalir efna til fjöldamótmæla í Róm - Merkel líkt við nasistaforingja
Um 100.000 manns mótmæltu í Róm laugardaginn 18. maí. Forystumenn verkalýðssamtaka stjórnuðu aðgerðunum undir rauðum fánum og markmið þeirra var að knýja fram stefnubreytingu hjá nýrri ríkisstjórn landsins undir forsæti Enricos Letta sem kemur úr röðum vinstri manna. Þá einkenndust mótmælin einnig a...
ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum
Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....