Finnair hefur þriðja árið í röð verið valið besta flugfélag Norður-Evrópu. Icelandair er í fjórða sæti á eftir SAS og Norwegian. Viðurkenningin er veitt af undir merkjum Skytrax World Airline Awards og var hún kynnt á Farnborough-flugsýningunni á Englandi.
„Finnair beinir athygli sinni fyrst og síðast að þörfum viðskiptavina sinna og það er markmið okkar að skapa ró í huga farþega okkar á öllu ferðalagi þeirra. Við erum stolt af því að taka við þessum verðlaunum þriðja árið í röð. Það sýnir að persónuleg þjónusta okkar í þágu farþeganna vekur verðuga athygli,“ sagði Arja Suominen, einn af sviðstjórum Finnair, við vefsíðuna checkin.dk sunnudaginn 15. júlí.
Finnair er í fyrsta sæti, SAS öðru, Norwegian þriðja, Icelandair fjórða og síðan Estonian Air, Iceland Express og Sverigeflyg.
Skytrax World Airline Awards nýtur viðurkenningar sem eini hlutlausi aðilinn sem leggur mat á viðhorf farþega til þjónustu flugfélaga og gæði.
Qatar Airways var valið besta flugfélag heims í Farnborough, Asiana Airlines hlut annað sæti og Singapore Airlines þriðja og féll þar með um eitt sæti frá 2011.
Turkish Airlines hlaut efsta sæti flugfélaga í Evrópu, það er sjöunda sæti á heimslistanum. Lufthansa hækkaði um eitt sæti í hið 14, en Swiss hækkaði um fimm sæti í hið 18.
Heimild:epn.dk
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.