Þeir sem selja flugfarmiða á netinu verða að birta lokaverð með álögum og aukagjöldum en mega ekki hafa gjald fyrir forfallatryggingu sem hluta af lokaverði þótt kaupanda sé gefinn kostur á að taka ekki trygginguna og losna þar með við gjaldið.
Þetta er niðurstaða ESB-dómstólsins sem var birt fimmtudaginn 19. júlí. Það var neytendaverndarhópur í Þýskalandi sem skaut málinu til dómstólsins í Lúxemborg og stefndi þar ebookers.com Deutschland sem selur flugfarseðla á netinu.

Þegar viðskiptavinir netsölufyrirtækisins bókuðu miða á netinu fengu þeir tilkynningu um verð flugferðarinnar með sköttum og gjöldum auk forfallatryggingar, iðgjaldið var reiknað sjálfkrafa.
Neðst á vefsíðunni birtist tilkynning um hvernig viðskiptavinur skyldi haga sér ef hann vildi ekki kaupa forfallatrygginguna en verð hennar var eins og áður segir fellt sjálfkrafa inn í kostnaðartöluna sem birtist viðskiptavininum.
ESB-dómstóllinn sagði að viðskiptavinir ættu að hafa leyfi til að ákveða sjálfir hvort þeir vildu kynna sér kostnað við þjónustuþætti „sem falla hvorki undir skyldu né eru nauðsynlegir vegna flugsins“.
„ESB lög krefjast þess að gerð sé grein fyrir slíkum aukakostnaði á skýran, gegnsæjan og ótvíræðan hátt við upphaf hverrar bókunar og það sé undir ákvörðun viðskiptavinar komið hvort hann ákveður að greiða þennan kostnað,“ segir í niðurstöðu ESB-dómaranna.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum
Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmdastjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...
Depardieu býr sig undir að eignast kaffihús í Rússlandi
Franski leikarinn Gérard Depardieu sem fékk rússneskan ríkisborgararétt í janúar 2013 var mánudaginn 20. maí opinberlega skráður sem atvinnurekandi í Saransk, höfuðborg Mordóvíu, um 650 km fyrir austan Moskvu. Fréttastofan Ría Novostoi flutti þessi tíðindi og hafði þau eftir Nikolai Borodatsjef, for...
Portúgal: 82,5% vilja rifta samningnum við þríeykið og fá hagstæðari lánskjör
Ný könnun í Portúgal sýnir að almenningur telur að síðustu aðgerðir í ríkisfjármálum landsins, harkalegur niðurskurður með fjöldauppsögnum muni aðeins leiða til verra ástands í landinu en nú ríkir. Þá stendur vilji meirihluta manna til þess að ríkisstjórnin rifti samningum við ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) til að ná megi betri samningi en þeim sem nú gildir.
Kýpur: Um 60% viðskiptavina eins banka hugsanlegir aðilar að peningaþvætti
Um 60% af viðskiptvinum eins banka á Kýpur eru í áhættuhópi vegna peningaþvættis og villur eru í upplýsingum um nær þriðjung innistæðueigenda samkvæmt því sem fram kemur í skýrslu, sem lekið var á kýpverskri vefsíðu um helgina. Frá þessu segir euobserver. Skýrsla þessi var samin í apríl á vegum Evrópuráðsins og Deloitte að ósk fjármálaáðherra evruríkja.