Einn af sérfræðingum London School of Economics, Paul de Grauwe, spáir því að Spánn muni leita eftir neyðaraðstoð við spænska ríkið í haust og bendir á, að þá þurfi Spánn að endurfjármagna 27 milljarða evra í ríkisskuldum. Þetta kemur fram í spænska dagblaðinu El Pais í dag. Blaðið segir í morgun, að Spánverjar hafi búið sig undir svartan mánudag á fjármálamörkuðum eins og komið er í ljós og fjallað er um í annarri frétt hér á Evrópuvaktinni.
Í frétt blaðsins kemur fram, að fleiri og fleiri í Brussel geri ráð fyrir hinu sama og sérfræðingur LSE þ.e. að Spánn þurfi á neyðaraðstoð að halda með haustinu. Það 100 milljarða evra neyðarlán til Spánar, sem til meðferðar hefur verið að undanförnu er eingöngu vegna bankanna þar í landi en ekki vegna spænska ríkisiins.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.