Miðvikudagurinn 21. apríl 2021

BBC: Hag­fræðingar telja Grikkland þurfa 50 milljarða evra aðstoð til viðbótar


24. júlí 2012 klukkan 08:38

Fulltrúar þríeykisins, ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu koma til Aþenu í dag til að leggja mat á árangur Grikkja við að uppfylla lánaskilmála sína. Á því mati byggist hvort Grikkland fær greiddar 31,5 milljarða evra, sem er síðasti hlutinn af 130 milljarða evra aðstoð, sem samþykkt var að veita Grikklandi í marzmánuði sl. Hinn 20. ágúst n.k. þarf Grikkland að standa skil á 3,8 milljarða evra greiðslu til Seðlabanka Evrópu. Niðurstaðan um það hvort Grikkir fá greiddan síðasta hluta lánsins liggur ekki fyrir fyrr en í september. BBC segir að án þeirrar greiðslu kunni SE að þurfa að veita Grikklandi tímabundna fyrirgreiðslu.

Jafnframt eru frekari greiðslur á gjalddaga í september og fái Grikkland ekki síðasta hluta lánsins greiddan stendur landið á barmi greiðsluþrots.

Grikkir hafa lofað að koma halla á fjárlögum niður fyrir 3% í árslok 2014. Í lok síðasta árs nam hann hins vegar 9% af vergri landsframleiðslu. (Til samanburðar var halli á fjárlögum íslenzka ríkisins 5,8% á síðasta ári.)

Á undanförnum misserum hefur grískum ríkisstjórnum tekizt að skera ríkisútgjöld niður um 17 milljarða evra. Það hefur leitt til þess að heildarskuldir Grikklands hafa minnkað úr 160% af vergri landsframleiðslu í 132%. Samkvæmt lánaskilmálum eiga þær skuldir að vera komnar niður í 120% af vergri landsframleiðslu 2020.

Til þess að ná ofangreindum markmiðum þarf ríkisstjórn Samaras að afla 12 milljarða evra með hærri sköttum og sölu eigna. Gríski seðlabankinn telur að landsframleiðsla Grikklands lækki um 5% í ár og þar með sé Grikkland komið í dýpstu kreppu frá árunum upp úr 1930 en Samaras sagði við Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum dögum í Aþenu að Grikkland stæði frammi fyrir sams konar kreppu og Bandaríkin á þeim tíma.

Af framangreindum ástæðum öllum segir BBC að hagfræðingar telji að Grikkland þurfi á að halda 50 milljörðum evra í aðstoð til viðbótar við það sem komið er.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS