Rodrigo Rato, brottrekinn stjórnarformaður Bankia, spænska bankans, sem myndaður var með sameiningu nokkurra sparisjóða og komst svo í þrot, er nú byrjaður að svara fyrir sig en Rato er bæði fyrrverandi efnahagsráðherra Spánar og fyrrverandi forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Rato sagði í ræðu fyrir spænska þinginu, að rikisstjórn sósíalista á Spáni og Seðlabanki Spánar hefðu lagt hart að sér að fara með Bankia á markað, sem hefur leitt til mikils taps fyrir fjárfesta á Spáni. Hann sagði ríkisstjórn Zapatero hafa gert sér ljóst hverjar afleiðingarnar yrðu fyrir Spán ef Bankia hefði fallið frá þeim áformum.Þá sagði hann núverandi ríkisstjórn Spánar, þ.e. Lýðflokksins, sem Rato er í, hafa lagst gegn áætlun, sem hann hefði lagt fram í apríl, sem hefði sparað skattgreiðendum mikið fé.
Þá sagði Rato að í júní 2010 hefði hann verið kallaður á skyndifund í Seðlabanka Spánar og þvingaður til samninga við banka í Valencia.
Ríkisstjórn Rajoy var því andvíg að Rato talaði á opnum fundi þingsins og vildi að vitnisburður hans færi fram fyrir luktum dyrum en varð að hverfa frá þeirri afstöðu. Þetta kemur fram í Financial Times.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.