Royal Bank of Scotland og UBS auk Barclays

Reuters-fréttastofan segi í dag, að dómsskjöl og heimildarmenn sem tengist rannsókn LIborvaxtamálsins gefi til kynna að miðlarar við þrjá evrópska banka hafi komið mjög við sögu við fölsun Libor-vaxtanna. Auk Barclays-banka er um að ræða starfsmenn Royal Bank of Scotland og svissneska bankans UBS.
Reuters segir að sumir þessara miðlara séu enn við störf á Wall Street, þar á meðal einn, sem hafi unnið fyrir Barclays í New York.
Talið er að svindlið hafi byrjað á árinu 2005 á dollaramarkaðnum. Í ágúst það ár hafi starfsmenn Barclays byrjað að hafa samband við starfsmenn annarra banka í því skyni að hafa áhrif á vaxtaákvarðanir.
Á árinu 2007 hafi það náð til markaðar í yenum. Áður höfðu miðlarar Barclays fiktað við vaxtaákvarðanir í dollurum og evrum.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Frakkland: Fjárlagaráðherrann sem skaut undan skatti hættir við þingframboð
Jerôme Cahuzac, fyrrverandi fjárlagaráðherra Frakka, sem hrökklaðist frá embætti eftir að hafa sagt ósatt um eignir sínar og sætir nú rannsókn vegna skattsvika og leynireikninga í Sviss og Singapúr, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í auka-kosningu um hið gamla þingsæti sitt. Hann segist óttast að verða fyrir illvígum hatursárásum.
Howe lávarður segir Cameron hafa misst flokkstökin í ESB-málum
Howe lávarður segir að David Cameron, forsætisráðherra Breta, sé að missa tökin á Íhaldsflokknum vegna ágreinings um ESB-mál. Howe lávarður gegndi lykilhlutverki árið 1990 þegar Margaret Thatcher var hrakin úr forystu flokksins vegna ágreinings um ESB-mál.
Ítalía: Um 38% ungmenna án atvinnu
Um 38% ungmenna á Ítalíu á aldrinum 15-24 ára eru atvinnulaus skv. yfirliti, sem birt er á fréttavef BBC í tilefni af mótmælum um 100 þúsund Rómarbúa vegna heimsóknar Angelu Merkel til Ítalíu í gær. Atvinnuleysi er langmest í þessum aldursflokki á Grikklandi og Spáni, eins og áður hefur komið fram en Ítalía er í þriðja sæti.
Ný könnun: 46% Breta vilja yfirgefa Evrópusambandið
Samkvæmt nýri skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Sunday Telegraph í London vilja 46% Breta yfirgefa Evrópusambandið.