Það hægði á hagvexti í Bandaríkjunum á milli fyrsta og annars fjórðungs þessa árs. Á öðrum fjórðungi nam hagvöxtur 1,5% en á hinum fyrra var talið að hann hefði aukizt um 1,9% en nú segir BBC að sú tala hafi verið leiðrétt og sé um 2%. Engu að síður eru þetta betri tölur en búizt hafði verið við og markaðir í Bandaríkjunum hækkuðu í kjölfarið.
Hvíta Húsið gerir nú ráð fyrir 2,3% hagvexti á þessu ári og 2,7% á næsta ári. Meginástæðan fyrir því að hægt hefur á hagvexti vestan hafs er minni einkaneyzla.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....
Þýzkaland: Aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka að hluta
Samkvæmt fréttum Deutsche-Welle hefur Bundestag, þýzka þingið samþykkt lög um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi með þeim fyrirvara þó, að hann ber að framkvæma ef umsvif sem rekja má til fjárfestingarbankastarfsemi ná 100 milljörðum evra eða um 20% af efnahagsreikningi.
Ítalía: Álagningu fasteignaskatta frestað- einn milljarður í vinnuhvetjandi aðgerðir
Hin nýja ríkisstjórn Enrico Letta á Ítalíu tilkynnti í gær fyrstu aðgerðir til tilslökunar í efnahagsmálum. Álagningu óvinsæls fasteignaskatts hefur verið frestað að kröfu flokks Berlusconi og einn milljarður evra settur í aðgerðir, sem eiga að vera vinnuhvetjandi.
Gagnrýni Schäubles á hægferð framkvæmdastjórnar ESB veldur undrun og reiði ESB-embættismanns
Embættismaður framkvæmdastjórnar ESB (sem óskaði nafnleyndar) sagði við AFP-fréttastofuna föstudaginn 17. maí að gagnrýni Wolfgangs Schäubles, fjármálaráðherra Þýskalands, á framkvæmdastjórnina fyrir að bregðast of hægt við vandamálum innan ESB eins og atvinnuleysi ungs fólks væri „óskiljanleg ... o...