Irish Times segir í dag- og byggir að einhverju leyti á franska dagblaðinu Le Monde- að vangaveltur séu um áætlanagerð til þess að bjarga Spáni og Ítalíu á þann veg, að fyrst muni EFSF, hinn tímabundni neyðarsjóður ESB, sem hefur töluvert laust fé undir höndum, kaupa spænsk og ítölsk skuldabréf í útboðum en síðan muni ESM, hinn varanlegi neyðarsjóður ESB taka við því hlutverki, þegar hann taki til starfa í september. En jafnframt muni Seðlabanki Evrópu hefja kaup á skuldabréfum þessara ríkja á eftirmarkaði.
Misvísandi yfirlýsingar hafa komið frá ráðamönnum innan ESB um málið. Þannig hefur Mario Draghi, aðalbankastjóri SE gefið sterkar yfirlýsingar um stuðning bankans við evruna en Jens Weidman, aðalbankastjóri Bundesbank, þýzka seðlabankans hefur talað á þann veg að SE mundi hvergi koma nærri skuldabréfakaupum.
Irish Times segir að Luis de Guindos, efnahagsráðherra Spánar hafi sagt Wolfgang Schauble, fjármálaráðherra Þýzkalands á fundi þeirra fyrr í vikunni að Spánn kynni að leita eftir allsherjaraðstoð frá ESB/AGS/SE.
Angela Merkel og Francois Hollande töluðu saman í síma í gær og í kjölfarið var gefin út tilkynning um varðstöðu þeirra um evruna.
Þýzka dagblaðið Die Welt lýsir Mario Draghi sem Trójuhesti innan SE, sem standi ekki lengur vörð um stöðugleika og grundvallaratriði.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...
Þýzka timaritið Der Spiegel segir að það sé að verða til „týnd kynslóð“ í Evrópu. Hin pólitíska elíta á meginlandinu hafi frekar viljað standa í gömlu hugmyndafræðilegu stríði en snúa sér að því verki að koma upp árangursríkri menntun og þjálfun, sem geri ungu fólki í Suður-Evrópu kleift að finna vinnu við sitt hæfi.
Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum
Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmdastjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...