Rússneska varnarmálaráðuneytið hafnar því að ríkisstjórn Rússlands stefnu að því að reisa fyrstu nýju herflotastöðina utan rússnesku landamæranna frá hruni Sovétríkjanna árið 1991. Áður hafði fréttastofa haft eftir yfirmanni rússneska flotans að athygli beindist að Kúbu, Víetnam og Seychelles-eyjum í þessum augnamiði. Ráðuneytið sagði flotaforingjann aldrei hafa sagt þetta.

Vegna fjárskorts hafa Rússar orðið að loka flestum herstöðvum sínum erlendis eftir 1991. Þeir lokuðu síðustu stöð sinni í Víetnam árið 2002. Nú halda þeir aðeins úti herstöðvum í Úkraínu og Sýrlandi utan Rússlands. Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur heitið að efla herstyrk Rússlands.
Undanfarin ár hefur rússneski flotinn látið meira að sér kveða á fjarlægum slóðum en áður, Skip hans hafa meðal annars verið send til aðgerða gegn sjóræningjum undan ströndum Sómalíu.
„Það er rétt við vinnum að því að skapa aðstöðu fyrir flotann utan Rússlands,“ hafði RIA-Novosti fréttastofan eftir Viktor Tsjirkov vara-aðmíráli, yfirmanni rússneska flotans.
Fréttastofan sagði að í Moskvu væri unnið að því að skapa aðstöðu fyrir tæki og búnað á Kúbu, Seychelles-eyjum og í Víetnam.
Varnarmálaráðuneytið í Moskvu segir að Tsjirkov hafi aldrei látið hin tilvituðu orð falla og ekki hafi verið minnst á þetta mál þegar hann ræddi við fréttastofuna.
„Málefni tengd alþjóðasamskiptum falla ekki undir ábyrgðarsvið yfirmanns herflotans,“ sagði ráðuneytið í yfirlýsingu á vefsíðu sinni. Ummælin eru „ímyndun höfundarins sem ákvað að stunda æsifréttamennsku í stað þess að sýna hæfni sína og vandvirkni sem blaðamaður.“
Þegar Pútín var forseti í fyrra skipti árið 2002 lokuðu Rússar herstöð sinni í Cam Rahn í Víetnam þar sem þeir höfðu verið síðan 1979. Vísað var til þess að Víetnamar hefðu krafist hærri leigu en áður fyrir aðstöðuna. Þá var einnig talið að Rússar hefðu viljað bæta samskipti við Bandaríkjamenn með því að loka stöðinni.
Rússar halda úti herafla í Sevastopol í Úkraínu þar sem Svartahafsfloti þeirra hefur aðsetur. Þá hafa herskip þeirra aðgang að höfninni í Tartus í Sýrlandi.
Helsta hindrunarlausa siglingaleið Rússa út á heimshöfin er frá Kóla-skaga við austurhluta Noregs. Í kalda stríðinu var varnarlína gegn sovéska herflotanum dregin frá Grænlandi um Íslands til Skotlands (GIUK-hliðið).
Heimld: BBC
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...