Rúmenar greiða atkvæði í dag um hvort Traian Basescu, forseti Rúmeníu, skuli neyddur til að afsala sér embætti. Hann er sakaður um að hafa farið á svig við stjórnarskrána. Vinstristjórn Victors Ponta fosætisráðherra beitti sér fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Kannanir benda til að eina von Basescus sé að kosningaþátttaka verði undir 50% og kosningin því ekki bindandi. Um 18 milljónir manna eru á kjörskrá. Margir Rúmena telja að forsetinn beri ábyrgð á sparnaðar- og niðurskurðarstefnunni sem hefur þrengt að efnahag þeirra.
Því er spáð að ákvörðun stjórnarandstæðinga um að sitja heima, almennt lítill áhugi Rúmena á kosningum og sumarleyfi verði til þess að Basescu verði ekki ýtt til hliðar. Hann stóðst svipaða atlögu árið 2007.
Framkvæmdastjórn ESB hefur gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna og segir hana grafa undan virðingu fyrir lögum og rétti.
Úrslita er vænst mánudaginn 30. júlí.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.