
Evrukreppan er farin að hafa veruleg áhrif í Asíu segir í Financial Times í dag. Nýjar tölur um framleiðslu og útflutning helztu Asíuríkja benda til þess að þau fylgi nú í kjölfar Bandaríkjanna og Evrópu í efnahagslega lægð. Framleiðsla minnkaði heldur í Kína í júlí, útflutningur frá Suður-Kóreu minnkaði verulega og óvæntur samdráttur varð á Tævan á öðrum fjórðungi ársins.
Útflutningur frá Suður-Kóreu minnkaði um 8,8% í júlí. Gert er ráð fyrir áþekkum tölum frá Kína og Tævan í næstu viku. Þessar tölur eru til marks um minnkandi eftirspurn frá Bandaríkjunum og Evrópu, segir FT.
Þá kemur fram í FT að svipuð teikn séu á lofti í Ástralíu.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Framkvæmdastjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu
Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...
Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara
Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...
Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildarviðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.
David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...